Formúla 1

Kobayashi fljótastur á síðasta æfingadegi í Barcelona

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kobayashi hefur verið talinn viltasti ökumaðurinn á ráslínunni.
Kobayashi hefur verið talinn viltasti ökumaðurinn á ráslínunni. nordicphotos/afp
Kamui Kobayashi á Sauber bíl var fljótastur á æfingum dagsins í Barcelona í dag. Þetta var síðasti dagur æfingalotunnar sem staðið hefur síðan á þriðjudag.

Liðin óku miklar vegalengdir í dag eða samtals 984 hringi. Að meðaltali ók hvert lið 109 hringi sem er um það bil tvöföld keppnisvegalengd í spænska kappakstrinum sem fer fram á brautinni ár hvert.

Pastor Maldonado á Williams var annar og Paul di Resta á Foce India þriðji. Þá röðuðu toppmennirnir Jenson Button, Felipe Massa og Mark Webber sér í fjórða til sjötta sætið, allir innan við 1,5 sekúndur á eftir Kobayashi.

Æfingarnar í Barcelona hafa verið mjög jafnar. Caterham liðið hefur hins vegar skorið sig úr þessa vikuna. Petrov og Kovalainen, ökumenn liðsins, hafa verið langt á eftir besta hringtíma hinna sem hlýtur að teljast áhyggjuefni svo stuttu fyrir mót.

Síðasta æfingalotan áður en tímabilið hefst fer fram í Barcelona í næstu viku. Ástralski kappaksturinn er fyrstur á dagskrá þann 18. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×