Vill ekki taka áhættu með Katrínu og Þórunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2012 20:00 Þórunn Helga Jónsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Mynd/Fésbókarsíða KSÍ
Þórunn Helga Jónsdóttir og Katrín Ómarsdóttir gátu ekki spilað með íslenska kvennalandsliðinu í sigrinum á Kína í Algarvebikarnum í dag og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, telur ólíklegt að þær geti verið með í leiknum um fimmta sætið sem verður á móti Dönum á miðvikudaginn. Þórunn Helga hefur ekkert spilað á mótinu og Katrín spilaði 27 síðustu mínúturnar í fyrsta leiknum á móti Þýskalandi. „Katrín og Þórunn eru báðar meiddar ennþá og við ætlum að taka stöðuna á þeim aftur á morgun og hinn. Mér finnst ólíklegt að þær spili en það er kannski örlítill möguleiki á að Þórunn spili eitthvað," sagði Sigruður Ragnar Eyjólfsson, kvennalandsliðsþjálfari. „Þórunn meiddist daginn sem hún átti að koma út að hitta okkur og hélt að þetta væri smávægilegt en þetta var aðeins meira en hún reiknaði með. Katrín meiddist á æfingu hjá okkur þegar hún var að hlaupa á eftir boltanum og teygði sig eitthvað. Hún steig eitthvað vitlaust niður og tognaði á kálfa. Það gerðist eftir Þýskalandsleikinn," sagði Sigurður Ragnar. „Mér finnst ólíklegt að við tökum áhættu með þær út af meiðslastöðu almennt hjá miðjumönnum liðsins. Það eru svo margar meiddar og ef við myndum spila þeim í síðasta leiknum þá værum við að taka áhættu því þær eru ekki búnar að ná sér hundrað prósent. Það eru samt pínulítið meiri líkur á því að Þórunn verði búin að ná sér heldur en Katrín," sagði Sigurður Ragnar.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Sjá meira