Formúla 1

Hamilton á ráspól í Malasíu og Button annar

Birgir Þór Harðarson skrifar
Schumacher, Hamilton og Button ræsa fremstir í kappakstrinum á morgun.
Schumacher, Hamilton og Button ræsa fremstir í kappakstrinum á morgun. nordicphotos/afp
McLaren ökuþórarnir endurtóku leikinnfrá því í Ástralíu fyrir viku síðan og röðuðu bílum sínum fremst á ráslínuna fyrir kappaksturinn í Malasíu á morgun.

Í þriðja sæti ræsir Michael Schumacher á Mercedes. Þetta er besti árangur Schumachers eftir að hann snéri aftur í Formúlu 1 árið 2010. "Við reyndum að finna bestu málamiðlunina á milli tímatökunnar og keppninnar og þriðja sætið er því mjög góður árangur ef við skoðum hverjir eru fyrir aftan okkur," sagði Schumacher á blaðamannafundi eftir tímatökuna.

Hamilton ók frábæran hring og átti lang besta tíma lengi framan af í tímatökunum. Liðsfélagi hans og Schumacher voru þeir einu sem áttu einhvern séns í að bæta tíma Hamilton.

Sebastian Vettel ók einn fljúgandi hring á mjúku dekkjunum en setti lélegan tíma. Liðið skipti þá yfir á hörðu dekkjagerðina og Vettel bætti tíma sinn. Hann mun því ræsa á harðari dekkjunum í fimmta sæti. Það verður áhugavert að sjá hvernig hin liðin bregðast við því. Liðfélagi Vettels, Mark Webber ræsir fjórði.

Ferrari átti mjög erfiða tímatöku. Felipe Massa komst ekki upp úr annari lotu tímatökunnar. Fernando Alonso sagði níunda besta tíma það besta sem mögulega var hægt að fá út úr bílnum.

Paul di Resta sigraði einvígið gegn liðsfélaga sínum, Nico Hulkenberg, í þetta skiptið. Force India slagurinn er annað sem spennandi verður að fylgjast með í kappakstrinum á morgun.



@VisirSport
fylgdist með tímatökunni á Twitter og fylgist með kappakstrinum aftur á morgun.

Rásröðin í kappakstrinum á morgun.1. Hamilton

2. Button

3. Schumacher

4. Webber

5. Vettel

6. Grosjean

7. Rosberg

8. Alonso

9. Perez

10. Raikkönen

11. Maldonado

12. Massa

13. Senna

14. di Resta

15. Ricciardo

16. Hulkenberg

17. Kobayashi

18. Vergne

19. Petrov

20. Glock

21. Pic

22. de la Rosa

23. Karthikeyan

24. Kovalainen




Fleiri fréttir

Sjá meira


×