Formúla 1

Hamilton fær 3 milljarða á ári og vill nýjan samning við McLaren

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton líður vel hjá McLaren og vill halda áfram að aka fyrir liðið.
Hamilton líður vel hjá McLaren og vill halda áfram að aka fyrir liðið. nordicphotos/afp
Lewis Hamilton er tilbúinn að eyða næstu Formúlu 1-árum sínum hjá McLaren og vill fá nýjan samning. Núgildandi samningur hans rennur út í ár en þá hefur hann gilt í fimm ár og skilað honum rúmum þremur milljörðum króna á ári.

Hamilton hefur ekið fyrir McLaren síðan árið 2007 þegar hann ók fyrst í Formúlu 1. Hann varð heimsmeistari með liðinu ári síðar og verið í titilbaráttu allar götur síðan. Hamilton er jafnframt talinn einn hæfileikaríkasti ökuþór formúlunnar.

"Það þarf enginn að sannfæra mig um að vera hér áfram," sagði Hamilton. "Liðið er að gera frábæra hluti og ég gæti ekki verið ánægðari. Mér líður eins og ég geti ekki yfirgefið þetta."

Bretinn hæfileikaríki hefur þó verið á mála hjá McLaren í lengri tíma, eða alveg síðan hann var 13 ára gamall. Þá tók Ron Dennis, fyrrum liðstjóri McLaren, Hamilton keppa í neðri deildum mótorsports og ákvað að styðja við bakið á honum.

Ekki er ár liðið síðan það sást til Hamilton og Christian Horner, liðstjóra Red Bull, ræða saman í einrúmi fyrir kanadíska kappaksturinn. Var það talið merki um að Lewis væri þá þegar farinn að huga að framtíð sinni í Formúlu 1 og að hann vildi hugsanlega færa sig um set.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×