Formúla 1

Hamilton fljótastur á æfingum í Kanada

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagsins.
Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagsins. nordicphotos/afp
Breski ökuþórinn Lewis Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagins í Kanada í dag. McLaren-bíll hans virkaði fínt en liðsfélagi hans, Jenson Button, ók aðeins fáeina hringi vegna bilunar í gírkassa.

Það var ekki langt á efstu manna á seinni æfingunni. Aðeins skildu 0,7 sekúndur efstu þrettán að. Enn heldur Formúla 1 að vera óútreiknanleg og erfitt er að ráða í það hver verður fremstur á ráslínu í tímatökunum fyrir kappaksturinn á morgun.

Athygli vakti að Lotus-liðið, með þá Kimi Raikkönen og Roman Grosjean við stýrið, gekk illa að raða sér meðal þeirra efstu. Bílar liðsins voru fjórtándu og fimmtándu hröðustu í seinni æfingunni.

Michael Schumacher var um það bil 0,2 sekúndum fljótari en liðsfélagi sinn í seinni æfingunni. Sigri hann um helgina verður hann sjöundi sigurvegarinn í ár. Sjö gæti reynst happatalan hans því hann, sjöfaldur heimsmeistarinn, ekur bíl sjö, hefur sigrað sjö sinnum í Kanada og gæti sigrað mót númer sjö.

Tímatökur fyrir kappaksturinn eru á morgun klukkan 16:50 og er í beinni á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×