Formúla 1

Er lukka Schumacher á þrotum?

Birgir Þór Harðarson skrifar
Mercedes getur ekki útskýrt hvers vegna bíll Schumachers bilar hvað eftir annað. Ætli lukka hans sé á þrotum?
Mercedes getur ekki útskýrt hvers vegna bíll Schumachers bilar hvað eftir annað. Ætli lukka hans sé á þrotum? nordicphotos/afp
Mercedes-liðið í Formúlu 1 leggur nú alla stund á að reyna að leysa vandamál Michael Schumacher. Heimsmeistarinn sjöfaldi hefur átt gríðarlega erfitt tímabil þrátt fyrir að hafa samkeppnishæfa græju í höndunum.

Schumacher hefur aðeins skorað tvö stig í fyrstu sjö mótum ársins. Liðsfélagi hans er fimmti í stigabaráttunni með 67 stig og einn sigur í Kína. Vel getur verið að lukka Schumacher sé á þrotum.

Í mótum ársins hefur Schumacher þurft að glíma við gírkassavandamál í Ástralíu, laust hjól eftir viðgerðarhlé í Kína, DRS vandræði í Barein, eldsneytisþrýstingstap í Mónakó og svo festist DRS vængurinn í uppréttri stöðu um síðustu helgi í Kanada.

Allt eru þetta vélræn vandamál sem Schumacher hefur lítið með að gera sjálfur sem ökuþór. Ross Brawn, liðstjóri Mercedes-liðsins, segir enga augljósa skýringu á þessari óheppni meistarans.

Sérstaklega eru vandræðin ömurleg því Nico Rosberg, liðsfélagi Schumachers, er einn fárra sem klárað hefur alla hringi í mótum ársins.

"Báðir bílarnir eru smíðaðir eftir nákvæmlega sömu reglum og aðferðum," segir Brawn. "Þessi vandræði með bíl Schumachers eru að skaða stöðu okkar í heimsmeistarabaráttunni. Því fær þetta vandamál algeran forgang."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×