Formúla 1

Hamilton fær ekki góðærissamning aftur

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton er örugglega þakklátur Ron Dennis sem hefur styrkt hann fjárhagslega í gegnum allan kappakstursferilinn.
Hamilton er örugglega þakklátur Ron Dennis sem hefur styrkt hann fjárhagslega í gegnum allan kappakstursferilinn. nordicphotos/afp
Lewis Hamilton, ökumaður McLaren, er á ofurlaunum hjá liðinu en samningur hans rennur út í lok árs. Þá vandast málið fyrir McLaren sem hefur ekki efni á að bjóða honum sömu laun og hann samdi um árið 2007.

Ron Dennis, fyrrverandi liðstjóri McLaren í Formúlu 1 og núverandi forstjóri McLaren Group, segir stöðuna gríðarlega flókna. "Við erum að nálgast enda samnings sem var gerður þegar efnahagurinn var nokkuð betri. Nú þurfum við að jafna launin hans út."

McLaren Group rekur meðal annars McLaren-liðið í Formúlu 1 og framleiðir McLarenF1 sportbílana vinsælu.

"Hann mun auðvitað líta í kringum sig og við munum líta á þá ökumenn sem eru mögulegir. En þegar allt kemur til alls vona ég að staðreyndin að hann hafi verið samningsbundinn McLaren allan sinn ökumannsferil vegi þyngra en annað."

Dennis er maðurinn sem uppgvötaði Hamilton fyrir aldamót. Hamilton ók þá í neðri deildum mótorsportsins í Evrópu og taldi Dennis hann svo efnilegann að hann ákvað að borga undir ferilinn hans. Það gekk eftir og Hamilton komst í Formúlu 1 hjá McLaren árið 2007 og varð heimsmeistari ári síðar.

"Við borgum honum mjög mikið," bætti Dennis við. "Hann fær allavega meira borgað en ég."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×