Formúla 1

Schumacher ekur sinn 300. kappakstur

Birgir Þór Harðarson skrifar
Schumacher hefur enn gaman að þessu þó hann hafi stundað mótorsport í um það bil þrjá áratugi.
Schumacher hefur enn gaman að þessu þó hann hafi stundað mótorsport í um það bil þrjá áratugi. nordicphotos/afp
Michael Schumcher mun taka þátt í sínum 300. kappakstri þegar Formúla 1 snýr aftur úr sumarfríi þann 2. september. Þá verður keppt á Spa í Belgíu en þar hefur Schumacher jafnan átt sínar stærstu stundir á Formúlu 1-ferlinum.

Schumacher varð fyrir nokkru annar reyndasti ökuþór síðan heimsmeistarakeppnin hófst. Hann skreið upp fyrir Ricardo Patrese sem ók í Formúlu 1 á árunum 1977-1993. Rubens Barrichello, fyrrum liðsfélagi Schumachers hjá Ferrari, er reyndasti ökuþór í Formúlu 1. Hann ók í 326 mótum á ferlinum sem endaði snarlega síðasta haust.

"Spa er eins og stofan heima," sagði Schumacher við Autosport. "Brautin er klárlega mín uppáhalds í heiminum."

"Það er eiginlega ekki fyndið hversu mörg og sérstök augnablik ég hef átt á Spa. Frumraun mín, minn fyrsti sigur, titilsigur og margir af mínum bestu sigrum. Sú staðreynd að þetta veður minn 300. kappakstur kallar hreinlega á að við fögnum því á réttan hátt."

"Það er engin spurning að við ætlum að reyna að hafa þessa helgi góða."

Helgin er ekki aðeins sérstök fyrir Schumacher því Sebastian Vettel mun aka sinn hundraðasta kappakstur í Belgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×