Formúla 1

Maldonado refsað - Raikkönen ræsir þriðji

Birgir Þór Harðarson skrifar
Maldonado var fyrir Hulkenberg í tímatökunum og fékk þriggja sæta refsingu.
Maldonado var fyrir Hulkenberg í tímatökunum og fékk þriggja sæta refsingu. Nordicphotos/afp
Pastor Maldonado, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1, hefur hlotið þriggja sæta refsingu fyrir að hindra Nico Hulkenberg í fyrstu lotu tímatökunnar í dag fyrir belgíska kappaksturinn. Maldonado ræsir því sjötti í kappakstrinum á morgun.

Það þýðir að Kimi Raikkönen mun stilla Lotus-bíl sínum upp í þriðja sæti á ráslínunni í kappakstrinum á morgun á undan Sergio Perez á Sauber og Fernando Alonso á Ferrari.

Maldonado sagði eftir tímatökuna í dag að þriðja sætið væri aðeins fyrsta vísbending þess að Williams-liðið verði mun öflugra á seinni helmingi keppnistímabilsins en það hefur verið í sumar.

Jenson Button ræsir sem fyrr fyrstur í McLaren-bílnum á undan Kamui Kobayashi á Sauber. Tímatakan var mjög skemmtileg og skilaði óvæntum úrslitum enda fengu liðin takmarkaðan tíma í morgun til þess að fínstilla bíla sína fyrir kappaksturinn og tímatökuna vegna mikilla rigninga á æfingum í gær.

Kappaksturinn hefst klukkan 12:00 á morgun og er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×