Formúla 1

Button á ráspól í Belgíu í fyrsta sinn fyrir McLaren

Birgir Þór Harðarson skrifar
Button var allra fljótastur um Spa brautina í dag.
Button var allra fljótastur um Spa brautina í dag. Nordicphotos/afp
Breski ökuþórinn Jenson Button mun ræsa fremstur í belgíska kappakstrinum á morgun. Tímatökunni lauk rétt í þessu og skilaði hún óvanalegum niðurstöðum.

Button hafði mikla yfirburði í tímatökunum og skákaði öllum keppinautum sínum með 0,3 sekúnta forskot. Þetta er í fyrsta sinn síðan í Mónakó árið 2009 sem Button nær ráspól. Þetta er einnig fyrsti ráspóllinn sem hann nær í McLaren-bíl. Um helgina er hann að taka þátt í 50. móti sínu fyrir liðið.

Kamui Kobayashi á Sauber mun ræsa annar. Það er í fyrsta sinn sem hann ræsir í fremstu línu og besti árangur Japana í tímatökum í Formúlu 1. Á eftir Kobayashi ræsir Pastor Maldonado á Williams-bíl en hann var fljótastur í fyrstu lotu tímatökunnar.

Efsti maður í titilbaráttunni, Fernando Alonso á Ferrari, mun ræsa sjötti á eftir Kimi Raikkönen og Sergio Perez. Mark Webber á Red Bull ræsirsjöundi en liðsfélagi hans, Sebastian Vettel, komst ekki upp úr lotu 2 og ræsir ellefti.

Lewis Hamilton, liðsfélagi Buttons hjá McLaren, ræsir áttundi.

Rásröðin í belgíska kappakstrinum


ÖkumaðurLiðTímiBil
1Jenson ButtonMcLaren/Mercedes1'47.573-
2Kamui KobayashiSauber/Ferrari1'47.8710.298
3Pastor MaldonadoWilliams/Renault1'47.8930.32
4Kimi RäikkönenLotus/Renault1'48.2050.632
5Sergio PérezSauber/Ferrari1'48.2190.646
6Fernando AlonsoFerrari1'48.3130.74
7Lewis HamiltonMcLaren/Mercedes1'48.3940.821
8Romain GrosjeanLotus/Renault1'48.5380.965
9Paul Di RestaForce India/Mercedes1'48.8901.317
10Sebastian VettelRed Bull/Renault1'48.7921.219
11Nico HülkenbergForce India/Mercedes1'48.8551.282
12Mark WebberRed Bull/Renault1'48.3920.819
13M.SchumacherMercedes1'49.0811.508
14Felipe MassaFerrari1'49.1471.574
15Jean-Eric VergneToro Rosso/Ferrari1'49.3541.781
16Daniel RicciardoToro Rosso/Ferrari1'49.5431.97
17Bruno SennaWilliams/Renault1'50.0882.515
18H.KovalainenCaterham/Renault1'51.7394.166
19Vitaly PetrovCaterham/Renault1'51.9674.394
20Timo GlockMarussia/Cosworth1'52.3364.763
21Pedro de la RosaHRT/Cosworth1'53.0305.457
22Charles PicMarussia/Cosworth1'53.4935.92
23Nico RosbergMercedes1'50.1812.608
24N.KarthikeyanHRT/Cosworth1'54.9897.416



Fleiri fréttir

Sjá meira


×