Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - ÍR 32-23 Birgir H. Stefánsson á Akureyri skrifar 4. október 2012 12:33
Akureyringar eru enn taplausir og með fimm stig af sex mögulegum í húsi eftir níu marka sigur á ÍR, 32-23, í Höllinni á Akureyri í 3. umferð N1 deildar karla í kvöld. Bjarni Fritzsson skoraði 11 mörk á móti sínum gömlu félögum og Jovan Kukobat var mjög góður í markinu. Akureyringar tóku frumkvæðið strax í byrjun með gamla ÍR-inginn Bjarna Fritzson í fararbroddi. Akureyrarliðið komst í 6-2, 10-5 og var 14-9 yfir í hálfleik þar sem Bjarni var kominn með sex mörk. Akureyringar gerðu síðan út um leikinn með því að vinna átta fyrstu mínútur seinni hálfleiksins 6-2 og ná níu marka forystu, 20-11. Eftir það var aldrei spurning um hvar sigurinn endaði. Það var boðið upp á burst fyrir norðan þegar heimamenn í Akureyri tóku á móti ÍR. Leikurinn var nokkuð jafn allra fyrstu mínúturnar en fljótlega náðu heimamenn taki á leiknum og því slepptu þeir ekki fyrr en leikurinn var flautaður af. Þrátt fyrir það að vera fimm mörkum undir í hálfleik voru ÍR-ingar enn inni í leiknum og höfðu nægan tíma til að svara fyrir fyrri hálfleik sem var frekar dapur í alla staði. Það var þó ekki að sjá að hálfleiksræðan hjá Bjarka þjálfara ÍR-inga hafi virkað því leikmenn ÍR mættu algjörlega hauslausir inn í seinni hálfleikinn. Á meðan gestirnir voru að tapa boltanum á alla mögulega vegu voru heimamenn að raða inn mörkum og eftir rúmlega tíu mínútna leik var staðan orðin 23-13 og vonir ÍR-ina að fara með einhver stig heim orðnar afar litlar. Jovan Kukobat var vel heitur í marki heimamanna og fór sérstaklega illa með Sigurjón Friðbjörn Björnsson. Sigurjón virtist hreinlega ekki geta klúðrað færi í úrslitakeppni N1 deildar á síðasta tímabili en í þessum leik var allt annað í gangi, það var ekki fyrr en í fimmtu og síðustu tilraun hans að hann náði að koma boltanum framhjá Kukobat. Það er mjög erfitt að taka einn leikmann úr liði heimamanna og hrósa honum sérstaklega. Bjarni Fritzsson var markahæstur þeirra en liðsheildin var sterk og allir skiluðu sínu. Hjá ÍR-ingum var það helst Björgvin Hólmgeirsson sem var að leiða liðið sóknarlega en annars voru líklegast allir aðrir að spila töluvert undir getu. Ekki var markvarslan betri en hún var svo gott sem engin eða um 20%. Niðurstaðan var því sannfærandi og öruggur 9 marka sigur heimamanna sem var mjög svo verðskuldaður þar sem gestirnir úr Breiðholti mættu einfaldlega ekki til leiks. Bjarni Fritzsson: Bestu áhorfendur á landinu„Ég er alveg ótrúlega ánægður og gríðarlega stoltur af mínu liði," sagði Bjarni Fritzzon einn þjálfari Akureyrar og markahæsti maður liðsins með 11 mörk. „Það voru allir að skila sínu og allir fengu að spila nema Stebbi því Jovan var brjálæðislega góður í markinu. Ég er bara svo stoltur af þessum ungu strákum hvað þeir eru að spila vel. Spila liðsbolta, leggja sig fram og gera allt sem við leggjum upp með. Við erum ekkert að stressa okkur á því hver skorar mörkin, við spilum bara sem lið." Það var allt annað að sjá til liðsins í kvöld miðað við fyrsta heimaleik tímabilsins. „Við erum með bestu áhorfendur á landinu og við vorum mjög ósáttir út í okkur sjálfa eftir fyrsta leikinn. Það var eitt af uppleggjum okkar hér í dag að sýna fólkinu að við værum að leggja okkur alla fram og gefa af okkur til þeirra, þá fáum við tilbaka í staðin. Við erum í mjög góðu líkamlegu standi þannig að við höldum áfram að keyra á liðin. Þá gerist það sama eins og á móti fram að þau gefa aðeins eftir á meðan við höldum okkar striki og erum að rúlla mönnum mikið." Bergvin Þór Gíslason hefur verið að spila virkilega vel það sem af er tímabils og komið mörgum á óvart. „Við erum mjög ánægðir með hann. Við færðum hann í skyttuna til að auka breidd þar og við erum með allt of mikið af vinstri hornamönnum plús það að hann var að leysa skyttuna af í öðrum flokknum. Hann æfði virkilega vel í sumar og er í góðu standi. Svo stendur hann vörn eins og ég veit ekki hvað og við erum bara virkilega ánægðir með hann. Hann er í raun ekki að koma okkur neitt á óvart, hann er bara að sýna það sem hann hefur verið að gera á æfingum í sumar." Bjarki Sigurðsson: Eins og við höfum bara skilið allt eftir fyrir sunnan„Stór vonbrigði og mikil vonbrigði," sagði Bjarki Sigurðsson allt annað en ánægður með sína menn. „Það er eins og við höfum bara skilið allt eftir fyrir sunnan, þetta er eitthvað sem þarf að kryfja alveg niður í botninn. Þetta er það allra daprasta sem ég hef séð frá liðinu og þessum leikmönnum þótt að ég sé búinn að vera með þá núna í rúm tvö ár." ÍR-ingar áttu enn möguleika í hálfleik þrátt fyrir slaka frammistöðu en gerðu svo út um þá von með hræðilegri byrjun á seinni hálfleiknum. „Reynslumiklir menn eru að senda boltann frá sér og sóknarlega vorum við bara út á þekju. Það má ekki taka það af Akureyringum að þeir spila fyrirmyndar vörn og stoppuðu okkar sóknarleik á köflum mjög vel. Þess á milli vorum við að gera ágætis hluti og opna þá en á endanum þá var það markmaðurinn sem stoppaði það. Síðan vorum við bara með allt of marga tekkníska feila og við fáum á okkur aragrúa af hraðaupphlaupum, mjög mikið af auðveldum mörkum. Leikmenn voru síðan ekki með varnarlega og markvarslan var bara hörmuleg, þetta er bara vægast sagt mjög svekkjandi og dapurlegt." Skildu menn hjartað bara eftir í Breiðholtinu? „Það má halda það. Ég skil ekki hvað er að mönnum. Það sem við þurfum að gera núna er að setjast niður og menn þurfa að grafa djúpt til að sjá hvað er í gangi hjá hverjum og einum. Þetta liggur þarna einhversstaðar og það þarf bara að ná því fram."
Olís-deild karla Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Stelpurnar okkar í neðsta styrkleikaflokki fyrir EM Ómar með fjórtán og Gísli skoraði alltaf Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM EM-sæti í húfi: „Mjög spennt að sjá hvar við stöndum núna“ Rekinn án skýringa og ætlar í mál Sjá meira