Rakel Dögg spilaði sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2012 19:21 Rakel Dögg Bragadóttir Mynd/Valli
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilaði í dag sinn fyrsta leik síðan að hún sleit krossband skömmu fyrir HM í Brasilíu fyrir tæpu ári síðan. Rakel Dögg skoraði 3 mörk í tapleik á móti Íslands- og bikarmeisturum Vals í N1 deild kvenna í Mýrinni. Rakel var ekki búin að vera með í þremur fyrstu leikjum Stjörnunnar á tímabilinu þar sem að sjúkraþjálfarinn vildi að hún æfði á fullu í fimm til sex vikur fyrir fyrsta leik. „Þetta gekk bara fínt og mér leið bara mjög vel. Ég var óvenju spræk því ég hélt ég yrði meira hikandi. Þegar maður var kominn inn í leikinn þá var ég ekkert að hugsa út í það að ég væri að stíga upp úr meiðslum," sagði Rakel Dögg í samtali við Vísi. „Ég er pínu þreytt og svo fékk í slink á hnéð í lokin og fór bara útaf síðustu tíu mínúturnar. Það er ekkert alvarlegt en maður er orðinn aðeins skynsamari með árunum," sagði Rakel Dögg óvenju kát eftir tapleik enda mikill sigur fyrir hana að komast aftur inn á handboltavöllinn.
Olís-deild kvenna Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn „Fannst við stýra leiknum vel og láta þetta fara í okkar átt“ „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Tölurnar á móti Króatíu: 15-1 fyrir Króata í mörkum með langskotum „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Þorsteinn inn en Andri og Elvar fyrir utan Myndir: Fjölskyldustemning í Fan Zone Elvar úr leik í átta vikur: „Hans verður sárt saknað“ Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Ómar segist eiga meira inni Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ „Virkar eins og maður sé að væla“ Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Sjá meira