Haukar vinna á vörn og markvörslu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. apríl 2012 07:00 Haukar og HK leika fyrsta leikinn í kvöld.
Seinni undanúrslitaviðureignin í N1-deild karla hefst í kvöld þegar HK sækir deildarmeistara Hauka heim. Fréttablaðið fékk Einar Jónsson, þjálfara Fram, til þess að spá í spilin. „Haukarnir vinna þetta á tvennu: vörn og markvörslu. Þar hafa þeir verið frábærir í vetur og verið að bæta sig stöðugt," sagði Einar. „Aron Rafn markvörður byrjaði rólega en er í alþjóðaklassa að mínu mati og búinn að vera einn besti maður deildarinnar. Svo er næstbesti markvörður landsins á bekknum. Það er ekki ónýtt að fara út í úrslitakeppni vitandi að þú færð alltaf 20 varða bolta." HK-liðið hefur bitið hraustlega frá sér í vetur en hvað þarf að ganga upp hjá þeim svo þeir eigi möguleika gegn Haukum? „Markvarslan hjá þeim verður að lagast. HK á tvo fína markverði en þeir hafa ekki staðið sig eins vel og maður bjóst við. Arnór var bara frábær gegn okkur og ég þakka honum fyrir það. Bæði hann og Björn eiga mikið inni og þeir verða að stíga upp núna," sagði Einar og bætti við: „HK er þess utan afar vel skipulagt lið og sterkt á báðum endum vallarins. Þeir eiga þrjá menn sem geta tekið af skarið í sókninni og breidd í vörninni hjá sér. Það háir þeim að markvarslan er minni hjá þeim en öðrum." Einar segir að Haukarnir þurfi samt að hafa mikið fyrir hlutunum. „Haukar vinna í kvöld og einvígið. Ég hef samt mikla trú á þessu HK-liði og ef markvarslan dettur í gang, eins og hjá FH í fyrra, þá er liðið til alls líklegt. Ég held að þessi rimma fari alla leið og Haukar vinni 3-2."
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira