Betra líkamlegt ásigkomulag skortir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2012 07:00 Tveir góðir Ágúst Jóhannsson (til hægri) með Gústaf Adolf Björnsson, aðstoðarmann sinn, sér við hægri hönd á æfingu landsliðsins í Serbíu.Fréttablaðið/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir Tékkum í umspilsleikjum um sæti á heimsmeistaramótinu næsta sumar. Landsliðsþjálfarinn segir að bæta þurfi frammistöðuna frá því á EM í Serbíu til að eiga möguleika og að stelpurnar þurfi að vera í betra standi. „Tékkar eru með gríðarlega sterkt lið. Þær spiluðu frábærlega á EM og unnu sem dæmi Úkraínu, lið sem við töpuðum í tvígang fyrir í riðlakeppni EM. Þær töpuðu naumlega bæði gegn Noregi og Danmörku. Þá leiki sá ég og þær voru að spila virkilega vel," segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands. Um liðna helgi varð ljóst að Ísland mætir Tékkum í umspilsleikjum um sæti á heimsmeistaramótinu í Serbíu. Leikirnir fara fram í júní en lokakeppnin í desember. Ísland hefði ekki getað fengið betri mótherja í drættinum og Ágúst játar því að ekkert lið hafi verið ofar á óskalistanum. Tékkar og Rúmenar hafi komið upp í kollinn en allir andstæðingarnir séu sterkir. „Tékkar eru mjög sterkt lið. Okkar lið þarf að vera heilsteyptara í þessum leikjum og í betra líkamlegu ásigkomulagi en í Serbíu. Það er eitthvað sem leikmenn þurfa að vinna í og ég kem til með að ræða við hópinn í rólegheitunum," segir Ágúst og telur Íslendinga eiga helmingsmöguleika gegn Tékkum svo framarlega sem stelpurnar verði í betra standi. Ágúst nefnir vítaköst sem dæmi þegar hann er spurður hvernig Ísland standi illa hvað líkamlega getu varðar. „Við fáum á okkur 21 vítakast í þremur leikjum á meðan við sækjum ellefu. Það er bara einn þáttur. Þegar okkar leikmenn sækja í fintur, fara í árásir einn gegn einum þá fáum við fríköst. Við klárum ekki brotin okkar megin nógu vel og fáum á okkur vítaköst," segir Ágúst en gerir sér grein fyrir því að líkamlegur styrkur verði ekki bættur yfir nóttu. „Þetta er einn þáttur í þessu sem við þurfum að vinna í hægt og rólega og markvisst á næstu árum. Þetta er ekkert sem breytist á næstu mánuðum." Ágúst segir vissulega vonbrigði að íslenska liðið hafi ekki komist upp úr riðli sínum á Evrópumótinu í Serbíu sem lauk um helgina. Markmiðið hafi verið háleitt en spilamennskan hafi þó valdið honum vonbrigðum ef frá er talið tapið gegn Rúmeníu sem hafi verið góður leikur af hálfu íslenska liðsins. „Þess ber þó að geta að Svartfjallaland vann mótið og Rússland varð í sjötta sæti. Þetta eru gríðarlega sterkar þjóðir, það segir sig sjálft, en að sama skapi vil ég meina að við getum betur og eigum að geta sýnt betri spilamennsku en við gerðum. Varnarleikurinn var almennt nokkurn veginn á pari en hraðaupphlaup og sóknarleikur er eitthvað sem við þurfum að vinna með," segir Ágúst sem vill að fleiri leikmenn taki meiri ábyrgð í sóknarleiknum. Vinstri skyttur íslenska liðsins, þær Stella Sigurðardóttir, Ramune Pekarskyte og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, náðu sér engan veginn á strik á mótinu. „Það var svo sem sama hver var að spila þar, þær voru því miður ekki að ná sér á strik. Allar reyndu að sjálfsögðu 100 prósent, það vantaði ekkert upp á það, en svona er þetta stundum. Það náði sér enginn á strik þar og það vantaðisárlegamörk af vinstri vængnum. Það segir sig sjálft að lykilmenn þar voru ekki að skora þau mörk sem þeir eru vanir að gera," segir Ágúst sem var afar ánægður með framlag Rutar Jónsdóttur í stöðu hægri skyttu. „Rut spilaði frábærlega og þetta var hennar besta stórmót," segir Ágúst. Næst á dagskrá eru æfingaleikir í mars áður en hópurinn kemur saman í maí fyrir leikina gegn Tékkum í júní. „Við höfum góðan tíma fyrir leikina gegn Tékkum. Við vinnum í þessum hlutum, reynum að bæta okkur og vera eins tilbúin og við getum fyrir Tékkaleikina. Það verða gríðarlega erfiðir leikir og þar þurfum við að spila betur en við gerðum í Serbíu."
Olís-deild kvenna Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn „Fannst við stýra leiknum vel og láta þetta fara í okkar átt“ „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Tölurnar á móti Króatíu: 15-1 fyrir Króata í mörkum með langskotum „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Þorsteinn inn en Andri og Elvar fyrir utan Myndir: Fjölskyldustemning í Fan Zone Elvar úr leik í átta vikur: „Hans verður sárt saknað“ Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Ómar segist eiga meira inni Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ „Virkar eins og maður sé að væla“ Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Sjá meira