Real Madrid vann í sjö marka leik Stefán Árni Pálsson skrifar 6. janúar 2013 00:01 Mynd/Nordic Photos/Getty
Real Madrid vann sigur á Real Sociedad, 4-3, í hreint ótrúlegum leik á Santiago Bernabéu í spænsku úrvalsdeildinni nú síðdegis. Iker Casillas, markvörður Real Madrid, byrjaði annan leikinn í röð á varamannabekknum en það tók ekki langan tíma fyrir þann spænska að koma við sögu í leiknum. Antonio Adán fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins átta mínútna leik þegar hann braut á leikmanni Sociedad sem sloppinn var einn í gegn. Vítaspyrna dæmd og Adán fauk útaf. Karim Benzema hafði reyndar komið Real Madrid yfir í leiknum á annarri mínútu leiksins en það var Xabier Prieto sem jafnaði metin úr vítaspyrnunni. Sami Khedira kom síðan Real Madrid yfir tíu mínútum fyrir leikhlé en Xabier Prieto var aftur á ferðinni nokkrum mínútum síðar og jafnaði metin 2-2. Þannig var staðan í hálfleik. Þá var komið að Cristiano Ronaldo en hann skoraði tvö mörk á þriggja mínútna kafla tuttugu mínútum fyrir leikslok og staðan orðin 4-2. Leikmenn Real Sociedad neituðu að gefast upp og minnkuðu muninn fimmtán mínútum fyrir leikslok þegar Xabier Prieto skoraði sitt þriðja mark í leiknum. Lengra komust Sociedad ekki og niðurstaðan sigur Real Madrid í mögnuðum leik. Real Madrid er í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig.Staðan í spænsku úrvalsdeildinni.
Spænski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Real Sociedad - Levante | Heldur Orri áfram að skora? Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Sjá meira