Formúla 1

Alonso fljótastur á þriðja degi æfinganna

Birgir Þór Harðarson skrifar
Alonso var fljótur um Barcelona-brautina.
Alonso var fljótur um Barcelona-brautina. nordicphotos/afp
Fernando Alonso á Ferrari varð fljótastur um Barcelona-brautina á þriðja degi æfinganna þar í gær. Öll liðin óku marga hringi og einbeittu sér síðdegis að keppnisaðstæðum.

Nico Hulkenberg á Sauber varð annar og Romain Grosjean þriðji. Nico Rosberg tók við af Lewis Hamilton hjá McLaren og setti fjórða besta tímann umhverfis brautina.

Báðir Williams-ökuþórarnir óku í gær, skiptu á milli sín deginum og voru nokkuð jafnir; aðeins skildi 0,151 sekúnda á milli þeirra Pastor Maldonado og Valtteri Bottas. Sá síðarnefndi ók reyndar hringinn á hörðu dekkjagerðinni en Maldonado á þeirri mjúku.

Tími Alonso er sá besti sem settur hefur verið á þessum þremur dögum æfingalotu tvö í Barcelona fyrir tímabilið sem hefst í mars. Tíminn er jafnframt hálfri sekúndu fljótari en besti tíminn sem settur var á mjúku dekkjagerðinni á undirbúningstímabilinu í fyrra.

Af botnbaráttunni er það að frétta að Marussia virðist vera í betri málum en Caterham, eitthvað sem var ekki tilfellið á keppnisvertíðinni í fyrra. Giedo van der Garde á Caterham ók nánast hálfri sekúndu hægar en Max Chilton á Marussia í gær.

Búast má við fleiri þjónustu hléum á vertíðinni sem fer í hönd heldur en í fyrra. Sem dæmi má taka að í keppnisprófunum Romain Grosjean og Lotus í dag stoppaði ökuþórinn fjórum sinnum til að skipta um dekk.

Síðasti æfingadagurinn í Barcelona er í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×