Golf

Átta Ástralir höfðu endað í öðru sæti á Mastersmótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Greg Norman.
Greg Norman. Mynd/Nordic Photos/Getty
Adam Scott endurskrifaði sögu ástralska kylfinga í gær með því að verða fyrsti Ástralinn til að vinna Mastersmótið í golfi. Fram að þessu leit hreinlega út fyrir að það lægju álög á áströlskum kylfingum á þessu fornfræga móti.

Adam Scott var fyrir þetta mót einn af þeim Áströlum sem höfðu endaði í öðru sæti á Mastersmótinu en hann varð í 2. sæti fyrir tveimur árum ásamt landa sínum Jason Day. Jason Day var einnig meðal efstu manna í gær og endaði að lokum í þriðja sæti.

Frægasta dæmið um "álögin" var lokahringur Greg Norman á mótinu 1996. Norman var með sex högga forskot fyrir lokahringinn en lék þá á 78 höggum og endaði því fimm höggum á eftir sigurvegaranum Nick Faldo.

Tíu árum áður hafði Greg Norman endaði aðeins einu höggi á eftir Jack Nicklaus og 1987 tapaði Norman eftir umspil. Það var því kannski ekki skrýtið að Adam Scott heiðraði hinn litríka landa sinn Greg Norman eftir að hafa náð fyrstur Ástrala að klæðast græna jakkanum.

Jim Ferrier, fyrsti Ástralinn sem endaði í öðru sæti á Mastersmótinu, var með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn árið 1950 en lék á 75 höggum á síðasta deginum og tapaði titlinum til Jimmy Demaret.

Hér fyrir neðan má sjá þá áströlsku kylfinga sem höfðu rétt misst af græna jakkanum.

Ástralir sem höfðu endaði í 2. sæti á Mastersmótinu:

2011    Adam Scott

2011    Jason Day

1996    Greg Norman

1987    Greg Norman

1986    Greg Norman

1980    Jack Newton

1972    Bruce Crampton

1950    Jim Ferrier




Tengdar fréttir

Greg Norman hefur mikla trú á Adam Scott

Adam Scott vann í gær Mastersmótið í golf og fékk að klæðast græna jakkanum fyrstur Ástrala. Hann sagði eftir sigurinn að Greg Norman ætti þátt í þessum titli því hann væri sá sem ástralskir kylfingar líta upp til.

Svona fór Adam Scott að því að vinna Mastersmótið

Ástralinn Adam Scott tryggði sér sigur á Mastersmótinu í gær eftir bráðabana á móti Argentínumanninum Angel Cabrera. Nú er hægt að sjá svipmyndir frá lokadeginum inn á Sjónvarpsvef Vísis eða með því að smella hér fyrir ofan.

Adam Scott vann Masters eftir umspil

Ástralinn Adam Scott varð í kvöld fyrsti Ástralinn sem vinnur Masters-mótið í golfi. Hann tryggði sér sigur á annarri umspilsholu gegn Argentínumanninum Angel Cabrera. Hann setti niður um fjögurra metra pútt fyrir sigri. Pútt Cabrera stoppaði upp við holuna.

Greg Norman á stóran þátt í titlinum

„Ég veit ekki hvernig þetta gerðist. Margt hefur breyst á tveimur árum,“ sagði Adam Scott. Nýbakaður sigurvegari á Masters átti erfitt með að koma tilfinningum í orð þegar græni jakkinn var í sjónmáli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×