Handbolti

Þær þrjár markahæstu framlengdu hjá Haukum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktoría Valdimarsdóttir og Karen Helga Díönudóttir.
Viktoría Valdimarsdóttir og Karen Helga Díönudóttir. Mynd/Haukar
Haukar hafa framlengt samninga sína við þrjá markahæstu leikmenn liðsins frá síðustu leiktíð í N1 deild kvenna í handbolta. Marija Gedroit, markahæsti leikmaður deildarinnar, hefur skrifað undir nýjan samning sem og hinar efnilegu Viktoría Valdimarsdóttir og Karen Helga Díönudóttir.

Marija Gedroit skoraði 156 mörk í 20 leikjum í vetur eða 7,8 mörk að meðaltali í leik. Karen Helga var með 3,5 mörk í leik og Viktoría skoraði 3,4 mörk að meðaltali.

Viktoría og Karen Helga eru báðar uppaldar hjá Haukum eiga að baki fjölda landsleikja með yngri landsliðum Íslands. Þær eru hluti af afrekshóp uppaldra leikmanna Hauka sem hafa unnið fjölda Íslands-, deildar- og bikarmeistaratitla í gegn um yngriflokkana. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×