Valur vann í átta marka leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. júní 2013 21:14 Dóra María Lárusdóttir skoraði fyrir Val í kvöld. Mynd/Valli
Valskonur lentu 2-0 undir gegn FH í Pepsi-deild kvenna en náðu að snúa leiknum sér í hag og vinna tveggja marka sigur í átta marka leik. Heiða Dröfn Antonsdóttir og Guðrún Björg Eggertsdóttir komu FH-ingum yfir á fyrstu 30 mínútum leiksins en þá ákvað Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, að gera breytingu á sínu liði. Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á fyrir Svönu Rún Hermannsdóttur og aðeins nokkrum sekúndum síðar var Valur búið að minnka muninn. Dóra María Lárusdóttir gerði það. Elín Metta Jensen jafnaði svo metin stuttu síðar og Svava Rós kom svo Val yfir í upphafi síðari hálfleiks. Elín Metta bætti fjórða markinu við með marki úr umdeildri vítaspyrnu sem hún fiskaði sjálf. Ashlee Hincks skoraði þriðja mark FH á 62. mínútu eftir undirbúning Sigrúnar Ellu Einarsdóttur. Svava Rós innsiglaði svo 5-3 sigur í uppbótartíma en skömmu áður hafði hún sloppið ein í gegnum vörn FH. Nanna Rut Jónsdóttir varði þá vel frá henni. Stjarnan vann Selfoss, 2-0. Fyrra mark Stjörnunnar var sjálfsmark en Harpa Þorsteinsdóttir skoraði hitt. HK/Víkingur hafði svo betur gegn Þrótti, 2-0, en fyrr í kvöld vann Breiðablik 3-1 sigur á ÍBV. Valur er komið upp í fjórða sæti deildarinnar með ellefu stig en Stjarnan er sem fyrr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga og þriggja stiga forystu á Breiðablik.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira