Golf

Sæti í lokakeppni Evrópumótsins tryggt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Strákarnir okkar stóðu sig frábærlega í Tékklandi.
Strákarnir okkar stóðu sig frábærlega í Tékklandi. Mynd/GSÍmyndir.net
Íslenska karlalandsliðið í golfi tryggði sér í dag sæti á Evrópumóti áhugamanna sem fram fer í Finnlandi á næsta ári.  

Íslenska liðið spilaði á 366 höggum í dag en fyrir daginn var ljóst að annað sæti yrði að nást ef EM draumurinn ætti að verða að veruleika. Það tókst og gott betur en það því helstu keppinautar okkar um annað sætið, Tékkar, áttu ekkert svar við stórleik okkar manna.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR átti hreint frábæran dag á golfvellinum. Hann lék á 66 höggum sem reyndist besta skor mótsins. Guðmundur fékk sex fugla og tólf pör á hringnum góða.

 

Það voru Belgar sem léku besta allra í undankeppninni þeir luku leik á 25 höggum yfir pari. Belgar áttu því 17 högg á okkur Íslendinga og tryggðu þar með sæti sitt á EM að ári.  

Íslenska liðið endaði á 42 höggum yfir pari sem eins og áður sagði dugði og við erum meðal keppnisþjóða á EM í Finnlandi, frábært!. Tékkar þurfa hinsvegar að bíta í það súra epli að ná ekki inn í mótið þrátt fyrir að hafna í þriðja sætinu sem átti að duga, súrara verður það ekki.

 

Samkvæmt keppnisskilmálum þá áttu þrjár þjóðir að geta tryggt sér þátttökurétt á EM í Finnlandi að ári en þar sem gestgjafar Finnar náðu ekki að tryggja sæti breyttist staðan enda gera reglugerðir ráð fyrir því að heimamenn fái sjálfkrafa keppnisrétt.

Finnar fá því eitt af þeim sætum sem voru í boði voru í undankeppninni. Þetta kom ekki í ljós fyrr í gærkveldi  þegar ljóst var hver staða Finna Evrópumótinu 2013 sem lýkur í dag í Danmörku.

 

 

Skor okkar kylfinga og staða þeirra í einstaklingskeppninni

3. sæti Andri Þór Björnsson, GR                            75/68/76 +3

4. sæti Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR           80/76/66 +6

15. sæti Haraldur Franklín Magnús, GR                 73/75/79 +11

18. sæti Axel Bóasson, GK                                    79/75/74 +12

25. sæti Rúnar Arnórsson, GK                              79/80/73 +16

28. sæti Ragnar Már Garðarsson, GKG                 76/80/77 +17

 

 

Skor einstaklinga

 

Skor liða


Tengdar fréttir

Ætlum okkur á Evrópumótið

Íslenska karlalandsliðið í golfi tekur þátt á móti í Tékklandi, en með góðum árangri tryggir liðið sér sæti á Evrópumótinu á næsta ári. Birgir Leifur Hafþórsson liðsstjóri telur að liðið eigi góða möguleika.

Andri Þór í banastuði og Ísland í góðum málum

Íslenska karlalandsliðið í golfi situr í öðru sæti að loknum tveimur hringjum af þremur á Challenge Trophy-mótinu sem er undankeppni fyrir Evrópumót karlalandsliða. Okkar menn spiluðu næstbest allra í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×