Neymar: Ég og Messi erum góðir vinir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2013 23:30 Argentínumaðurinn Lionel Messi og Brasilíumaðurinn Neymar. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það ríkir mikil eftirvænting í Barcelona fyrir komandi tímabili enda teflir liðið nú fram í fremstu víglínu tveimur af mest spennandi knattspyrnumönnum heimsins. Þetta eru Argentínumaðurinn Lionel Messi og Brasilíumaðurinn Neymar en hinn síðarnefnda keyptu Börsungar á 57 milljónir evra frá Santos í sumar. Knattspyrnuspekingar velta sér hinsvegar mikið upp úr því hvort að þeir geti hreinlega spilað saman inn á vellinum og hvort egóin geti blómstrað hlið við hlið. Neymar hefur engar áhyggjur af þessu. „Það er frábært samband milli mín og Messi. Ég og Messi erum góðir vinir. Ég tala við hann á hverjum degi. Messi er besti fótboltamaðurinn í heimi og ég ber mikla virðingu fyrir honum," sagði Neymar við blaðamenn á Spáni. „Ég er alltaf ánægðastur ef ég næ að hjálpa mínu liði. Auðvitað eru miklar væntingar gerðar til mín og ég mun reyna eins vel og ég get að standa undir þeim," sagði Neymar. „Ég er að reyna að komast inn í leik liðsins eins fljótt að ég get. Barcelona spilar fallegasta fótboltann í heimi og ég reyni mitt besta að aðlagast leik liðsins sem fyrst," sagði Neymar. Neymar fær væntanlega sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Barcelona þegar liðið mætir Santos annað kvöld í Joan Gampher bikarnum sem er árlegur leikur á Camp Nou á undirbúningstímabilinu.
Spænski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira