Handbolti

Valsmenn unnu Framara á Reyjavíkurmótinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Geir Guðmundsson átti stórleik í gær og skoraði átta mörk.
Geir Guðmundsson átti stórleik í gær og skoraði átta mörk.
Valur bar sigur úr býtum gegn Fram, 25-22, í Reykjavíkurmóti karla í handknattleik en leikurinn fór fram í Safamýrinni.

Staðan var 13-7 fyrir Valsmönnum í hálfleik. Geir Guðmundsson átti frábæran leik fyrir þá rauðklæddu og gerði átta mörk. Orri Freyr Gíslason skoraði fimm.

Stefán Baldvin Stefánsson og Ólafur Magnússon skoruðu báðir fimm mörk fyrir Framara í leiknum.

Valsmenn eru með sjö stig í mótinu sem og ÍR-ingar en bæði lið hafa leikið fjóra leiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×