Handbolti

Fram vann sex marka sigur í síðari leiknum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fram stelpur eru komnar áfram í EHF-bikarnum.
Fram stelpur eru komnar áfram í EHF-bikarnum. Mynd/Vilhelm
Kvennalið Fram í handknattleik er komið áfram í EHF-bikarnum í handbolta eftir 20-14 sigur á Olympia HC frá London.

Um síðari viðureign liðanna var að ræða en Fram vann 25 marka sigur í fyrri leiknum í gær. Leikurinn í dag var öllu jafnari og leiddu þær bláklæddu með fjórum mörkum í hálfleik 10-6.

Tíu leikmenn Fram skiptu mörkunum 20 nokkuð bróðurlega á milli sín. Marthe Sördal skoraði fjögur mörk, Karólína Vilborg Torfadóttir þrjú en aðrar minna.

Fram vann því viðureignina með 31 mars mun samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×