Skoðun

Flokkur heimilanna vill færa þeim nýja von

Halldór Gunnarsson skrifar
Flokkur heimilanna vill heiðarlegt og gegnsætt uppgjör við fortíðina og hrunið og aðdraganda þess. Hann vill vera flokkur samhygðar, réttlætis, jafnræðis og frelsis. Hann er flokkur allra heimila landsins og stendur vörð um hag og hagsæld hvers heimilis. Flokkurinn ætlar að tryggja flýtimeðferð allra dómsmála er varða skuldir heimilanna og koma fram með sanngjarnar lausnir.

Flokkur heimilanna vill að lög verði sett um flýtimeðferð dómsmála er varða lán og vexti lánastofnana, þannig að lögleg staða allra lána komi fram sem fyrst. Þegar sú staða er ljós, verði tekið á skuldalækkun með úrræðum handa öllum þeim sem tóku verðtryggð lán, til jafns við leiðréttingu gengislána. Vegna almenns forsendubrests sem hrunið olli verði höfuðstóll allra lána lækkaður, a.m.k. til jafns við verðmæti þeirra eigna sem þau hvíla á, og litið til þess hvenær lánin voru tekin. Þessar aðgerðir skulu vera almennar en ekki sértækar. Stöðva ber uppboð húseigna, heimila, bújarða og minni fyrirtækja uns niðurstaða dómsmála liggur fyrir. Ólögmæt eignaupptaka skal bætt og settar opinberar reglur um bætur til þeirra sem misst hafa eignir ólöglega. Afnema skal verðtryggingu nýrra húsnæðislána, breyta lánakerfinu og efla eignamyndun heimila og minni fyrirtækja. Festa ber gengi krónunnar og frysta um leið vísitölu verðtryggðra lána til heimila og minni fyrirtækja, uns niðurstaða dómsmála liggur fyrir. Boðið skal upp á ný óverðtryggð löng íbúðalán, einnig til uppgjörs eldri lána. Samsvarandi ný lán til bænda og minni fyrirtækja skulu tryggð. Skuldir Íbúðalánasjóðs á að gera upp. Aðgerðir til stuðnings fólki sem fyrir mestum eignamissi hefur orðið hafa forgang. Bæta ber stöðu aldraðra og öryrkja með óskertum ellilífeyri, auk eftirlauna.

Hagur lands og þjóðar

Efnahagslegur stöðugleiki skal tryggður. Þrengja ber reglur um útgreiðslur úr gömlu bönkunum og til erlendra aðila og leggja útgönguskatt á þær ógnarupphæðir. Endurskoða þarf starfsheimildir lánastofnana með nýrri lagalegri umgjörð, og tryggja við samkeppni milli þeirra. Endurskoða þarf lög um Seðlabankann. Aðgengi að alþjóðlegum mörkuðum er ómissandi. Halda ber þannig á hagstjórn að unnt sé að taka upp nýjan gjaldmiðil eða tengja krónuna við alþjóðlegan gjaldmiðil. Þá ber að lækka skatta og endurskoða lífeyrissjóði og bótakerfi. Skattkerfið skal einfaldað og stimpilgjöld aflögð. Stuðla skal að lækkun tolla með fríverslun. Líta ber til fleiri kosta en stóriðju um nýtingu á orkuauðlindinni með hag almennings að leiðarljósi og nýta orku fallvatna af ábyrgð. Landsvirkjun verður ekki seld. Virkja ber jökulvötn fremur en bergvatnsár og forðast að færast svo mikið í fang, að valdi þenslu í efnahagslífinu. Stuðla skal að því að neytendur á Íslandi njóti alþjóðlegrar samkeppni. Skoða ber sérstakan skatt á fyrirtæki sem starfa í fákeppni eða skipta stærstu félögum á neytendamarkaði upp í smærri einingar, sem verði í höndum ótengdra aðila.

Von heimilanna er fólkið sjálft, sem verður að rísa upp. Við verðum að breyta störfum Alþingis og reisa Ísland við. Flokkur heimilanna mun ganga markvisst til verks.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×