Handbolti

Stórvinkonur í Stjörnunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Liðsfélagar á ný Elísabet (til hægri) og Rakel Dögg héldu lengi úti sameiginlegri bloggsíðu.
Liðsfélagar á ný Elísabet (til hægri) og Rakel Dögg héldu lengi úti sameiginlegri bloggsíðu. Fréttablaðið/Daníel
Línumaðurinn Elísabet Gunnarsdóttir mun í dag skrifa undir samning við uppeldisfélag sitt, Stjörnuna í Garðabæ. Þetta hefur Fréttablaðið eftir áreiðanlegum heimildum. Elísabet varð Íslandsmeistari með Fram í vetur en heldur nú á heimaslóðir.

Hjá Garðabæjarliðinu hittir Elísabet fyrir stórvinkonur sínar úr Stjörnunni, Jónu Margréti Ragnarsdóttur og Rakel Dögg Bragadóttur. Rakel sagði upp samningi sínum við Stjörnuna í lok liðinnar leiktíðar en semur við félagið á nýjan leik í dag.

Ljóst er að Stjarnan verður með afar vel mannað lið á næstu leiktíð enda landsliðsmenn í flestum stöðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×