Nash heldur áfram út af peningunum 14. mars 2014 17:00 Steve Nash. vísir/getty
Hinn fertugi leikstjórnandi LA Lakers, Steve Nash, spilar ekki meira í vetur og margir eru á því að hann eigi að leggja skóna á hilluna í sumar. Nash er ekki einn þeirra. Nash á ár eftir af samningi sínum við Lakers og það ár mun gefa vel í aðra hönd. Hann fer ekkert leynt með að peningarnir eru ástæðan fyrir því að hann ætlar að halda áfram. "Svona er bara raunveruleikinn. Ég mun ekki hætta því mig langar í peninginn. Það er heiðarlegt. Við erum alltaf að óska eftir heiðarlegum íþróttamönnum er það ekki," sagði Nash. "Á sama tíma munu einhverjir segja að ég sé gráðugur. Ég sé búinn að fá mikinn pening á ferlinum og vilji græða enn meira. Já, ég þarf á því að halda að fá þennan pening. Það er miður ef einhverjum finnst það ömurlegt en ef sama fólk væri í mínum sporum þá myndi það gera nákvæmlega það sama." Á átján ára ferli í NBA-deildinni er Nash búinn að þéna yfir 137 milljónir dollara. Launin á næsta ári munu setja hann yfir 146 milljónir á ferlinum. "Ég gæti þóst vera meiddur allt næsta ár ef ég vildi og ekki gefið almennilega af mér. Ég er ekki þannig og ég mun gefa allt sem ég á næsta vetur." Nash hefur aðeins spilað tíu leiki fyrir Lakers í vetur og þess utan hefur hann aðeins spilað 60 leiki af 146 síðan hann kom til félagsins.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira