NBA í nótt: Houston í vandræðum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2014 09:31
Portland er komið í 2-0 forystu gegn Houston í rimmu liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Houston tapaði báðum leikjunum á heimavelli, þeim síðari í nótt, 112-105. Rimman færist nú til Portland þar sem næstu tveir leikir fara fram en fjóra sigra þarf til a komast áfram í næstu umferð.LaMarcus Aldridge átti frábæran leik fyrir Portland og skoraði 43 stig. Hann hefur þar með skorað minnst 40 stig í tveimur leikjum í röð í úrslitakeppninn og er fyrsti leikmaðurinn sem nær því síðan LeBron James gerði það árið 2009.James Harden setti niður þriggja stiga körfu þegar 30 sekúndur voru eftir og minnkaði þá muninn í þrjú stig fyrir Houston. En Portland kláraði leikinn á vítalínunni.Dwight Howard byrjaði vel fyrir Houston í nótt og skoraði 25 stig í fyrri hálfleik - en aðeins sjö í þeim síðari.Miami er komið í 2-0 forystu gegn Charlotte eftir sigur í nótt, 101-97. Dwayne Wade stal boltanum á lokasekúndum leiksins sem tryggði Miami endanlega sigurinn.LeBron James skoraði 32 stig og Chris Bosh 20. Michael Kidd-Gilchrist skoraði 22 stig fyrir Charlotte.Dallas vann San Antonio, 113-92, og jafnaði þar með metin í rimmu liðanna í 1-1. San Antonio hafði unnið Dallas tíu sinnum í röð fyrir leik næturinnar.Monta Ellis skoraði 21 stig í öruggum sigri Dallas og Shawn Marion bætti við 20 stigum. Manu Ginobili var með 27 stig fyrir Spurs og Tony Parker tólf.Úrslit næturinnar: Miami - Charlotte 101-97 (2-0) San Antonio - Dallas 92-113 (1-1) Houston - Portland 105-112 (0-2)Staðan í úrslitakeppninni
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira