Handbolti

Sara yfirgefur Mosfellsbæinn - samdi við FH

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Kristjánsdóttir og Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH.
Sara Kristjánsdóttir og Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH. Mynd/FH
Sara Kristjánsdóttir hefur gert tveggja ára samning við FH og mun spila með FH-liðinu í Olís-deild kvenna í handbolta næsta vetur.

Sara verður 22 ára í sumar en hún hefur spilað með Aftureldingu undanfarin ár og varð annar markahæsti leikmaður liðsins með 82 mörk í 21 leik í Olís-deild kvenna á þessu tímabili.

„Þetta er góður dagur fyrir FH. Sara er fjölhæfur leikmaður og sterkur karakter. Það er alveg ljóst að Sara mun vera okkur mikill liðsstyrkur og góður félagi," sagði Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, í fréttatilkynningu.

FH endaði sex sætum ofar en Afturelding í vetur en þurfti að hafa fyrir sigrunum í tveimur innbyrðisleikjum liðanna. Sara skoraði samtals tíu mörk í leikjunum tveimur á móti verðandi liðsfélögum í FH.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×