Handbolti

Stefán hættur með Val

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Arnarsson, til hægri, gerð Val að Íslandsmeistara á dögunum.
Stefán Arnarsson, til hægri, gerð Val að Íslandsmeistara á dögunum. Vísir/Daníel
Stefán Arnarson er hættur sem þjálfari Vals í Olís-deild kvenna en það staðfesti hann við Vísi í dag. Stefán lætur af störfum eftir sex ára dvöl að Hlíðarenda.

„Það er alveg ljóst að ég verð ekki áfram hjá Val. Stundum er gott að hætta leik þegar hæst stendur,“ sagði Stefán í samtali við Vísi í dag. „Ég er gríðarlega ánægður með minn tíma hjá Val og þetta mál snýst alls ekki um það.“

Stefán hefur átt í viðræðum við Fram og segir ljóst að ef hann heldur áfram í þjálfun mun hann gera það í Safamýrinni.

„Annað hvort tek ég mér hvíld eða verð hjá Fram. Ég þarf að gefa þeim lokasvar á morgun,“ sagði Stefán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×