Sænskur NBA-leikmaður dæmdur í 24 leikja bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2014 17:00 Jeffery Taylor í leik gegn Miami í fyrra. Vísir/Getty
Jeffery Taylor, leikmamaður Charlotte Hornets í NBA-deildinni í körfubolta, var dæmdur í 24 leikja bann eftir að hafa verið dæmdur sekur um ofbeldi gegn kærustu sinni. Taylor hefur þegar misst af 11 leikjum á þessu tímabili og við þá bætast aðrir 13 leikir. Hann mun ennfremur missa rétt tæplega 200 þusund dollara af kaupi sínu sem gera um 24,8 milljónir íslenskra króna. Leikmannasamtök NBA-deildarinnar hafa gagnrýnt dóminn sem þau segja alltof harðan og í raun brot á samstarfsamningi félaga og leikmanna NBA-deildarinnar. Jeffery Taylor er 25 ára gamall lítill framherji sem hefur spilað í NBA-deildinni frá 2012. Hann hefur bæði sænskan og bandarískan ríkisborgararétt. Jeffery Taylor spilaði með sænska landsliðinu á EM 2013 og var þá stigahæsti leikmaður liðsins með 21,2 stig í leik. Taylor var með 8,0 stig og 2,3 fráköst að meðaltali á 24,2 mínútum með Charlotte-liðinu á síðustu leiktíð en hann spilaði aðeins 26 leiki því hann sleit hásin í desember 2013. Taylor var handtekinn á hóteli í East Lansing í Michigan í lok september síðastliðinn fyrir ofbeldi gegn kærustu sinni, árás og fyrir að eyðileggja eignir hótelsins. Hann viðurkenndi brotið og fékk 18 mánaða skilorðsbundinn dóm.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira