Kynhneigð ekki vandamál á ÓL í Sotsjí Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2014 07:45 Andrei V. Tsyganov, sendiherra Rússlands á Íslandi er hér til vinstri. Vísir/Vilhelm „
Ég var sjálfur í Sotsjí fyrir um þrjátíu árum. Bærinn var pínulítill og aðeins með örfáa íbúa yfir vetrartímann. Hins vegar ferðaðist hálf þjóðin þangað á sumrin til að baða sig í Svartahafinu,“ segir Andrei V. Tsyganov, sendiherra Rússlands á Íslandi. Vika er í að Vetrarólympíuleikarnir hefjist í Sotsjí sem ljóst er að verður í framhaldinu vetrarparadís fyrir rússneskan almenning og íþróttafólk. „Nú eru þar nútímavædd samgöngu-mannvirki og við vonumst til þess að Sotsjí verði að vinsælum ferðamannastað árið um kring.“ Tsyganov bauð íslensku Ólympíuförunum í heimsókn í síðustu viku þegar tilkynnt var hverjir myndu keppa fyrir Íslandshönd. Rússneskir réttir voru á borðum auk þess sem hægt var að væta kverkarnar með vodkaskoti. Sendiherrann telur að Sotsjí verði mikilvæg rússnesku íþróttafólki í framtíðinni. Minnir hann á að við upplausn Sovétríkjanna hafi Rússar orðið af fjölmörgum mannvirkjum til íþróttamannvirkja. „Við misstum til dæmis margar skautahallir,“ segir Tsyganov og bætir við að rússneska meistaramótið hafi um tíma verið haldið í Þýskalandi sökum aðstöðuleysis. „Eftir leikana Sotsjí mun aðstaðan hafa batnað til muna.“ Skyldi engan undra. Reiknað er með því að kostnaður Rússa við að halda leikana muni nema sex þúsund milljörðum króna þegar upp verður staðið. Til samanburðar var kostnaður við Sumarólympíuleikana í London árið 2012 1.600 milljarðar króna. Leikarnir í Sotsjí verða þeir dýrustu í sögunni.Látið börnin bara í friði Fjölmiðlaumfjöllun vegna leikanna hefur að miklu leyti beinst að gagnrýni á hendur rússneskum yfirvöldum vegna mannréttindabrota. Heyrist þar mest í samkynhneigðum sem eru ósáttir við lagasetningu frá því síðasta sumar. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, hefur látið hafa eftir sér að samkynhneigðir séu velkomnir til Sotsjí að því gefnu að þeir láti börn í friði. Tsyganov tekur undir orð Pútíns.Andrei V. Tsyganov„Það eru engin vandamál. Lög okkar takmarka ekki réttindi samkynhneigðra á nokkurn hátt nema að því leyti að við viljum að börn séu látin í friði,“ segir Tsyganov. Lögin banna „áróður“ fyrir samtökum samkynhneigðra gagnvart börnum. „Þú mátt gera hvað sem þú vilt er snertir samkynhneigð en láttu börnin eiga sig.“ Sá rússneski minnir á að Ólympíuleikarnir fari fram samkvæmt Ólympíusáttmálanum. Alþjóðaólympíunefndin sé aðalskipuleggjandi leikanna í samstarfi við Rússa. Auk laganna umdeildu hafa íslamskir hryðjuverkamenn hótað því að gera árás á Sotsjí fari leikarnir þar fram. Tsyganov segir að því miður sé raunveruleikinn sá að Rússland sé meðal landa sem stafi mikil ógn af hryðjuverkum.Öryggisgæsla en ekkert ónæði „Við þekkjum hryðjuverk af eigin raun. Því eru öryggismál í forgangi hjá okkur og tekin mjög alvarlega. Rúmlega 40 þúsund lögreglumenn verða á svæðinu til að gæta öryggis keppenda og gesta,“ segir Tsygvanov sem gegnt hefur stöðu sendiherra hér á landi í tæp þrjú ár. „Við verðum þó ekki með lögreglumenn með metra millibili,“ segir Tsyganov. Vísar hann í orð Pútíns um að lögreglumennirnir muni sinna hlutverki sínu á skilvirkan hátt án þess að gestir hljóti ónæði af. Tsyganov segist vonast til þess að íslenskt íþróttafólk standi sig vel. Hann hefði ekkert á móti því að Ísland hefði betur gegn Rússum í keppni í Sotsjí. Hann minnir á að Ólympíuleikar snúist um fleira en að vinna sigra og afrek. „Ólympíuandinn mun svífa yfir vötnunum, nýr vinskapur myndast og fólk upplifa nýja hluti.“
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Fleiri fréttir Liðsstjóri Ferrari á spítala Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Sjá meira