Þjálfar Fram eða tekur sér frí Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. maí 2014 06:30 Valur náði mögnuðum árangri undir stjórn Stefáns. fréttablaðið/stefán
Stefán Arnarsson er hættur sem þjálfari Vals í Olís-deild kvenna eftir sex ára starf hjá félaginu. Á þeim tíma vann liðið sautján titla, þar af fjórum sinnum Íslandsmeistaratitilinn. „Stundum er gott að hætta leik þegar hæst stendur,“ sagði Stefán sem sagði viðskilnaðinn við Val góðan. „Ég er gríðarlega ánægður með minn tíma hjá Val.“ Hann staðfesti að hann hefði átt í viðræðum við nokkur lið en að Fram kæmi helst til greina hjá sér. „Ef ég þjálfa áfram verður það hjá Fram. Að öðrum kosti tek ég mér frí frá þjálfun,“ sagði Stefán í samtali við Fréttablaðið í gær. Það er því von á talsverðum breytingum hjá Val fyrir næsta tímabil en fyrirliðinn Hrafnhildur Ósk Skúladóttir lagði skóna á hilluna eftir sigur liðsins á Stjörnunni í úrslitarimmunni. Staða margra annarra leikmanna liðsins er í óvissu. Halldór Jóhann Sigfússon var áður þjálfari kvennaliðs Fram en hætti á vormánuðum til að taka við karlaliði FH. Óskar Bjarni Óskarsson hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Val en hann var aðstoðarmaður Stefáns í vetur.
Olís-deild kvenna Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde Fótbolti Fleiri fréttir Frábærar fréttir fyrir Frakka Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ ÍR byrjar nýja árið með besta hætti Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Díana Dögg öflug í sigri Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti Nýtt ár en áfram vinna Valskonur „Þetta eru gríðarlegar framfarir“ „Við eigum okkur allir drauma“ Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ „Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Ballið byrjar hjá strákunum okkar Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi Sigvaldi markahæstur er Kolstad varð bikarmeistari Strákarnir komnir í úrslit Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Sjá meira