Gíbraltar með FIFA fyrir dómstóla Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. febrúar 2015 14:00 Vísir/Getty
Knattspyrnusamband Gíbraltar ætlar að fara með umsókn sína um aðild að Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, fyrir alþjóðlegan áfrýjunardómstól íþróttamála í Lausanne [e. CAS]. Gíbraltar þurfti að fara sömu leið til að fá aðild sína að Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, samþykkta en eftir að það gekk í gegn fékk knattspyrnulandslið Gíbraltar að taka þátt í undankeppni EM 2016. Ársþing FIFA fer fram í lok maímánaðar og verður mál Gíbraltar tekið fyrir hjá CAS viku fyrr. Ef Gíbraltar vinnur málið er líklegt að FIFA neyðist til að samþykkja umsóknaraðildina. FIFA hafnaði umsókn Gíbraltar í september síðastliðnum þar sem Gíbraltar telst ekki sjálfstætt ríki heldur landssvæði sem er undir yfirráðum Bretlands. Gíbraltar er þó með heimastjórn en mikilvægir þættir á borð við utanríkis- og varnarmál eru enn undir stjórn bresku ríkisstjórnarinnar. FIFA hefur ekki viljað tjá sig um málið en forsvarsmönnum knattspyrnusambands Gíbraltar finnst illa farið með sig. Spænsk knattspyrnuyfirvöld hafa einnig barist gegn því að Gíbraltar komist inn í FIFA enda hefur Spánn aldrei viðurkennt fullveldi landsins. Ef Gíbraltar fær aðild sína samþykkta fær knattspyrnulandslið landsins þátttökurétt í undankeppni HM 2018.
FIFA Fótbolti Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira