Sigur í endurkomu Garnett | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. febrúar 2015 07:15 Kevin Garnett, til hægri, með Kevin Martin í leiknum í nótt. Vísir/AP
Kevin Garnett spilaði í nótt sinn fyrsta leik fyrir Minnesota Timberwolves síðan 2007 er liðið vann Washington, 97-77, í NBA-deildinni. Félagaskipti Garnett gengu í gegn rétt áður en félagaskiptaglugganum var lokað á dögunum en Garnett er mikil hetja þar í borg eftir að hafa spilað þar fyrstu tólf ár ferilsins. Viðbrögð heimamanna má sjá hér neðst í fréttinni. Hann skoraði fimm stig í leiknum í nótt og tók átta fráköst en stigahæstur var Kevin Martin með 28 stig. Marcin Gortat skoraði níu stig og var með fimmtán fráköst þar að auki fyrir Wasington. Washington hefur nú tapað fimm leikjum í röð og tíu af síðustu tólf leikjum sínum. Liðið er engu að síður í fimmta sæti austurdeildarinnar en Minnesota er í neðsta sæti vesturdeildarinnar. Miami vann Orlando, 93-90, í framlengdum slag Flórída-liðanna. Orlando var með leikinn í höndum sér en Miami vann upp átta stiga forystu á lokamínútu venjulegs leiktíma. Luol Deng var með 21 stig og Dwayne Wade átján fyrir Miami sem hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum, allt síðan að Miami missti Chris Bosh sem greindist með blóðtappa í lunga. Houston vann LA Clippers, 110-105. James Harden var með 21 stig og Corey Brewer tólf. Alls fóru tólf leikir fram í NBA-deildinni í nótt og má sjá úrslit þeirra hér fyrir neðan.Úrslit næturinnar: Orlando - Miami 90-93 Atlanta - Dallas 104-87 Boston - New York 115-94 Chicago - Charlotte 86-98 Houston - LA Clippers 110-105 Milwaukee - Philadelphia 104-88 Minnesota - Washington 97-77 New Orleans - Brooklyn 102-96 Denver - Phoenix 96-110 Utah - LA Lakers 97-100 Sacramento - Memphis 102-90 Portland - San Antonio 111-95
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira