LeBron James bætti met Scottie Pippen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2015 22:45 LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James setti nýtt NBA-met í nótt þegar hann hjálpaði liði sínu Cleveland Cavaliers að vinna 102-93 sigur á Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta. LeBron James er nú sá framherji sem hefur gefið flestar stoðsendingar í sögu deildarinnar en gamla metið átti Scottie Pippen, Heiðurshallarmeðlimur og sexfaldur NBA-meistari með Chicago Bulls. LeBron James gaf alls ellefu stoðsendingar í leiknum en hann setti metið þegar hann gaf á Kevin Love sem skoraði með þriggja stiga skoti þegar 6:26 mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Það var stoðsending númer fimm hjá honum í leiknum. Scottie Pippen gaf á sínum tíma 6135 stoðsendingar en þetta var stoðsending númer 6136 hjá James. James er á sínu tólfta ári í deildinni og hefur gefið 6,9 stoðsendingar að meðaltali í leik á NBA-ferlinum. Pippen gaf 5,2 stoðsendingar að meðaltali á sautján ára ferli sínum. James er aðeins þrítugur og á því mörg ár eftir til að bæta enn frekar við þetta met. „Þetta er mikið afrek að mínu mati. Hann er nýorðinn þrítugur og að bæta met svona snemma segir mikið til um hvernig leikmaður hann er. Hann hefur mikla hæfileika til að gera aðra betri í kringum sig og það er tilkomumikið," sagði David Blatt, þjálfari Cleveland Cavaliers.Flestar stoðsendingar hjá framherjum í NBA-deildinni: LeBron James 6142 Scottie Pippen 6135 John Havlicek 6114 Larry Bird 5696 Kevin Garnett 5375
NBA Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Sjá meira