Steve Kerr: Ætlar ekki að vera í kosningarherferð fyrir Curry Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2015 14:15 Stephen Curry og Steve Kerr. Vísir/Getty
Það stefnir í spennandi keppni um hver verður kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar á þessu tímabili en flestir eru þó á því að valið standi á milli þeirra Stephen Curry hjá Golden State Warriors og James Harden hjá Houston Rockets. Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, og Daryl Morey, framkvæmdastjóri Houston Rockets, gætu talist vera komnir í hálfgert sálfræðistríð þessa dagana vegna ummæla sína um sína leikmenn. „Mér er ekki sama um þetta því ég vil að Steph verði valinn bestur og ég tel að hann eigi þessi verðlaun skilið," sagði Steve Kerr við blaðamanna ESPN eftir æfingu liðsins. „Ég tel hinsvegar að það sé ekki í okkar verkahring að setja af stað kosningarherferð," sagði Kerr en hann var þá að vísa til þess að Daryl Morey, framkvæmdastjóri Houston Rockets, hefur notað hvert tækifæri til að tala um að James Harden eigi skilið að vera kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar á þessu tímabili. „Við erum að reyna að vinna leiki og það er mikil vinna framundan. Ef Daryl Morey vill vera í eins manns kosningarherferð fyrir James Harden þá má hann það. Það er í fínu lagi en við ætlum að einbeita okkur að öðru," sagði Steve Kerr. Curry og félagar í Golden State Warriors eru með besta árangurinn í Vesturdeildinni (47 sigrar og 12 töp) en Harden og félagar í Hopustin (41 sigur og 20 töp) eru í fjórða sætinu. Stephen Curry er með 23,8 stig og 7,8 stoðsendingar að meðaltali og hefur hitt úr 48,4 prósent skota sinna. Harden er með 26,9 stig og 7,0 stoðsendingar að meðaltali og hefur hitt úr 44,7 prósent skota sinna.
NBA Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Sjá meira