Meistararnir unnu í Los Angeles | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2015 10:43 Barist um boltann í leiknum í nótt. Vísir/Getty
San Antonio Spurs virðist til alls líklegt í úrslitakeppni NBA-deildarinnar, enn eitt árið. Liðið hafði betur gegn LA Clippers í Los Angeles í framlengdum leik í nótt, 111-107, og jafnaði þar með metin í rimmu liðanna í 1-1. Hinn síungi Tim Duncan skoraði 28 stig og Kawhi Leonard kom næstu rmeð 23 stig fyrir ríkjandi meistara San Antonio. Liðið endaði í sjötta sæti hinnar geysisterku vesturdeildar en Clippers því þriðja. Næstu tveir leikir fara fram í San Antonio þar sem lærisveinar Gregg Popovich gætu komið sér í góða stöðu. Spurs missti niður tíu stiga forystu bæði í þriðja leikhluta og fjórða en náði að koma sér í framlengingu með því að Patty Mills nýtti bæði vítaskotin sín þegar átta sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma. Duncan tók til sinna ráða í framlengingunni og skoraði fjögur stig í röð þrátt fyrir að vera með fimm villur á bakinu. San Antonio sýndi stáltaugar eftir þetta og kláraði leikinn. Blake Griffin náði sinni fyrstu tvöfaldri þrennu í úrslitakeppninni á ferlinum með 29 stigum, tólf fráköstum og ellefu stoðsendingum. Það dugði þó ekki til. DeAndre Jordan kom næstur með 20 stig og fimmtán fráköst. Rimma liðanna er sú eina sem er jöfn eftir tvo leiki í 8-liða úrslitum bæði austur- og vesturdeildanna. Atlanta og Memphis eru komin með 2-0 forystu í sínum rimmum eftir sigra á heimavelli í nótt.Úrslit næturinnar: Atlanta - Brooklyn 96-91 (2-0) Memphis - Portland 97-82 (2-0) LA Clippers - San Antonio Spurs 107-111 (1-1)
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira