Fimm brot í hendi John Wall | Óvissa um framhaldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2015 21:53 John Wall strax eftir fallið. Vísir/Getty
John Wall, leikstjórnandi Washington Wizards í NBA-deildinni, er ekki líklegur til að hjálpa liðinu mikið í úrslitakeppninni á næstunni. Í kvöld kom í ljós að hann er með fimm brot í vinstri hendi og vinstri úlnlið. Brotin sáust ekki á fyrstu röntgenmyndum en komu í ljós eftir frekar rannsóknir. John Wall meiddist í fyrsta leik Washington Wizards á móti Atlanta Hawks í undanúrslitum Austurdeildarinnar og missti af leik tvö þar sem Atlanta Hawks jafnaði metin. John Wall var með 18 stig og 13 stoðsendingar Atlanta Hawks í fyrsta leiknum sem Washington Wizards vann 104-98. Hann meiddist þegar hann setti höndina fyrir sig um leið og hann féll í gólfið. Wall hélt samt áfram og kláraði leikinn. Washington Wizards vann fimm fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni og John Wall var með 17,4 stig og 12,6 stoðsendingar að meðaltali í þeim. „Þetta er auðvitað ekki það sem þú vilt heyra. Miðað við það hvað hann var bólginn þá vissum við að þetta var ekki eitthvað gott. Við erum ennþá að tala við lækna um stöðuna," sagði Randy Wittman, þjálfari Washington Wizards. Hann er ekki búinn að afskrifa það að John Wall verði meira með. „Við verðum samt að undirbúa okkur fyrir það að spila án hans," sagði Wittman. „Þetta er auðvitað erfitt fyrir liðið en ég er viss um að þetta er enn verra fyrir John. Hann lagði svo mikið á sig til að komast á þennan stað á sínum ferli," sagði Paul Pierce, liðsfélagi John Wall hjá Washington Wizards.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira