Skýrslutökur yfir ákærðu tóku alls ellefu daga og hófust vitnaleiðslur fyrir rúmri viku síðan. Yfir fimmtíu manns hafa komið fyrir dóminn og gefið skýrslu og hefur vitnisburður sumra vakið meiri athygli en annarra.
Það var til að mynda þétt setið í dómsalnum þegar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings og einn af ákærðu í málinu, kom og gaf skýrslu. Þó voru þá fjarverandi starfsmennirnir „á gólfinu” sem einnig eru ákærðir í málinu, verðbréfasalarnir Pétur Kristinn Guðmarsson og Birnir Sær Björnsson.
Sakborningarnir hafa því mismikið látið sjá sig í dómsal og tók Vísir saman smá samantekt um viðveru níumenninganna í réttarhöldunum.

Hreiðar Már Sigurðsson: Forstjórinn fyrrverandi hefur aðeins setið aðalmeðferðina í einn dag, það er þegar hann kom og gaf skýrslu. Eins og kunnugt er situr hann nú í fangelsinu á Kvíabryggju vegna Al Thani-málsins en það tekur tæpa þrjá tíma að keyra þaðan til Reykjavíkur.
Fangelsismálastofnun segist ekki hafa yfir nægum mannskap og tækjum að ráða til að keyra á milli Reykjavíkur og Kvíabryggju á hverjum degi. Hreiðari var því boðið að dvelja á gæsluvarðhaldsganginum í Hegningarhúsinu svo hann gæti mætt í dómsal.

Sjá einnig: Hreiðar bauðst til að borga fyrir bíl og bílstjóra
Sigurður Einarsson: Líkt og Hreiðar afplánar Sigurður, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, fangelsisdóm á Kvíabryggju vegna Al Thani-málsins. Skýrslutakan yfir honum tók hálfan dag og fór hann strax aftur á Kvíabryggju að henni lokinni. Hann hefur því verið minnst í dómsal af sakborningunum níu. Sigurður sagði meðal annars fyrir dómnum að réttur hans til að vera viðstaddur aðalmeðferðina hefði verið fótum troðinn af yfirvöldum.

Magnús Guðmundsson: Fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg var einnig dæmdur í fangelsi vegna Al Thani-málsins og hefur hafið afplánun. RÚV greindi frá því að hún hefði hafist í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og má gera ráð fyrir því að Magnús sé nú búinn að dvelja þar í nokkrar vikur þar sem hann hefur oft komið í dómsal í fylgd fangavarða. Hvert Magnús fer svo liggur ekki fyrir en einn staður sem kemur til greina er Kvíabryggja þar sem hann myndi hitta félaga sína úr Kaupþingi.
Ingólfur Helgason: Fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi er eini sakborningurinn sem hefur verið viðstaddur öll réttarhöldin og varla misst mínútu úr. Skal kannski engan undra því mörg spjót hafa beinst að honum við aðalmeðferðina.
Sjá einnig: Var ekki einvaldur í Kaupþingi

Einar Pálmi Sigmundsson: Fyrrverandi forstöðumaður eigin viðskipta hefur setið meirihluta réttarhaldanna. Hann var fjarverandi þegar topparnir Hreiðar, Sigurður og Magnús gáfu skýrslu en hlustaði á framburð Ingólfs enda áttu þeir í miklum samskiptum á ákærutímabilinu.
Pétur Kristinn Guðmarsson og Birnir Sær Björnsson (verðbréfasalar í eigin viðskiptum): Starfsmennirnir „á gólfinu” sem ákærðir eru fyrir markaðsmisnotkun með hlutabréf í Kaupþingi. Pétur og Birnir keyptu hlutabréfin fyrir hönd bankans í miklum mæli á ákærutímabilinu, og eiga að hafa gert það að undirlagi Hreiðars, Sigurðar, Magnúsar, Ingólfs og Einars Pálma. Verðbréfasalarnir fyrrverandi hafa verið mikið í dómsal en mættu þó ekki þegar Hreiðar, Sigurður og Magnús gáfu skýrslu.
Sjá einnig: Ákærði brotnaði niður í dómsal
Bjarki Diego og Björk Þórarinsdóttir (sátu í lánanefnd Kaupþings á Íslandi): Bjarki var framkvæmdastjóri útlána hjá bankanum og Björk starfsmaður fyrirtækjasviðs. Þau létu lítið sjá sig í réttarsal fyrstu daga aðalmeðferðarinnar þegar starfsmenn eigin viðskipta gáfu skýrslu, en mættu svo þegar forstjórarnir og stjórnarformaðurinn komu fyrir dóminn. Bjarki og Björk eru ákærð fyrir söluhlið málsins; það sem snýr að lánveitingum Kaupþings til eignarhaldsfélaga svo þau gætu keypt hlutabréf í bankanum. Þau eru einu sakborningarnir sem gáfu skýrslu úr vitnastúkunni; aðrir sátu við lögmanna sinna.

Ýmsir hafa svo litið við í dómsal til að fylgjast með réttarhöldunum. Það vakti til dæmis athygli þegar héraðsdómarinn Þórður S. Gunnarsson mætti, að því er virtist bara til að hlusta á framburð Egils Ágústssonar.
Egill átti eignarhaldsfélagið Desulo Trading Ltd sem fékk milljarða að láni hjá Kaupþingi til þess að kaupa hlutabréf í bankanum. Hann bar fyrir dómi að hafa lítið sem ekkert vitað um viðskiptin og sagðist hafa lesið um það í Rannsóknarskýrslu Alþingis hvað Desulo hafði keypt mikið í bankanum.
Þá kíkti líka borgarfulltrúinn Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir við í hálftíma einn daginn en hún er lögmaður og sagðist í samtali við Vísi hafa haft gaman að því að sjá hversu tæknilegt dómþingið var. Kærastinn hennar er Gizur Bergsteinsson, verjandi Einars Pálma.