Horford tryggði Atlanta sigur á síðustu stundu Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. maí 2015 09:54
Atlanta Hawks vann nauman sigur, 82-81, á Washington Wizards í nótt í fimmta leik liðanna í undanúrslitum austurdeildar NBA-körfuboltans í nótt. Miðherjinn sterki, Al Horford, tryggði heimamönnum sigurinn með síðustu körfunni þegar 1,9 sekúndur voru eftir. Sigurkörfuna ,í afar hægri endursýningu, má sjá í spilaranum hér að ofan. Hann tók sóknarfrákast eftir misheppnað sniðskot Dennis Schröders og mokaði boltanum ofan í körfuna. Washington náði ekki að svara á tímanum sem var eftir. Horford var stigahæstur Atlanta-liðsins með 23 stig auk þes sem hann tók 11 fráköst, en hjá Washington var Bradley Beal stigahæstur með 23 stig. Staðan í einvíginu er 3-2 fyrir Atlanta og getur liðið tryggt sér sæti í úrslitum austurdeildarinnar í Washington í næsta leik. Eftir að lenda 2-1 undir gegn Memphis Grizzlies er Golden State nú búið að vinna tvo leiki í röð í einvíginu og er komið yfir, 3-2. Golden State vann 20 stiga sigur á heimavelli í nótt, 98-78, þar sem Klay Thompson var stigahæstur með 21 stig og Stephen Curry skoraði 18 stig. Marc Gasol var stigahæstur gestanna með 18 stig, en Memphis þarf að vinna á heimavelli í næsta leik til að tryggja sér oddaleik.Tilþrif hjá Steph Curry:
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira