Flautukörfuhelgi í NBA | Myndbönd af sigurkörfunum þremur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2015 07:30 Liðsfélagar LeBron James fagna honum í gær. Vísir/EPA
Það var nóg af dramatík í leikjum helgarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta en þrjú leikkvöld í röð tryggðu menn sínum liðum sigurinn með því að smella niður lokaskoti leiksins rétt áður en leiktíminn rann út. Þeir Derrick Rose hjá Chicago Bulls, Paul Pierce hjá Washington Wizards og LeBron James hjá Cleveland Cavaliers buðu allir upp á ótrúlegar sigurkörfur eftir mikla spennuleiki. Derrick Rose var fyrstur þegar hann skoraði sigurkörfu Chicago Bulls á móti Cleveland Cavaliers á föstudagskvöldið en hann skoraði þá þriggja stiga körfu, spjaldið ofan í, um leið og leiktíminn rann út. Paul Pierce skoraði sigurkörfu Washington Wizards í 103-101 sigri á Atlanta Hawks á laugardaginn, umkringdum varnarmönnum Atlanta. Það vakti ekki minni athygli þegar Pierce svaraði skemmtilega í sjónvarpsviðtali eftir leikinn. Pierce var spurður hvort hann kallaði spjaldið í lokaskotinu en svar hans var: „Ég kallaði, Leikurinn (I called, 'Game"),“ svaraði Paul Pierce. LeBron James tryggði Cleveland Cavaliers 86-84 sigur á Chicago Bulls með því að smella niður skoti í horninu en hann heimtaði boltann fyrir lokaskotið þegar þjálfarinn David Blatt ætlaðist til að hann sendi boltann úr innkastinu. Með þessari körfu jafnaði James einvígið í 2-2. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd af þessum þremur sigurkörfum frá þessari skemmtilegu NBA-helgi.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira