Sá besti tók ömmu-vítaskot þegar Golden State vann síðast | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2015 11:00 Rick Barry á vítalínunni. Vísir/Getty
Rick Barry var aðalmaðurinn þegar Golden State Warriors varð síðast NBA-meistari í körfubolta árið 1975 en félagið komst í nótt aftur í lokaúrslitin eftir 40 ára bið. Stephen Curry og félegar voru með besta árangurinn í deildarkeppninni og hafa síðan unnið 12 af 15 leikjum sínum á leið sinni inn í úrslitaeinvígið. Stuðningsmenn Golden State Warriors hafa beðið í 40 ár eftir því að liðið komist aftur í lokaúrslit NBA. Golden State Warriors vann þá 4-0 sigur á Washington Bullets. Rick Barry var valinn besti leikmaður lokaúrslitanna en hann var með 28,2 stig, 6,1 stoðsendingu, 5,5 fráköst og 2,9 stolna bolta að meðaltali í úrslitakeppninni. Rick Barry var frábær vítaskytta en hann notaði afar sérstakan skotstíl í vítunum. Barry, sem nýtti meðal annars 91,8 prósent víta sinna í úrslitakeppninni 1975, tók ömmu-skot á vítalínunni. Rick Barry spilaði í NBA-deildinni frá 1965 til 1980 en hann vann bara einn titil á ferlinum. Barry var átta sinnum valinn í Stjörnuliðið og fimm sinnum í úrvalslið tímabilsins. Tveir synir hans hafa spilað í NBA-deildinni, þeir Brent Barry og Jon Barry, en Brent Barry varð tivsvar sinnum NBA-meistari með San Antonio Spurs (2005, 2007). Hér fyrir neðan má sjá myndband með Rick Barry þegar hann varð NBA-meistari með Golden State Warriors fyrir 40 árum. Þar má meðal annars sjá hann raða niður vítaskotum með ömmu-stílnum sínum.
NBA Tengdar fréttir NBA: 40 ára bið á enda hjá Golden State Warriors | Myndbönd Það verða Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers sem spila til úrslita um NBA-meistaratitilinn í ár en það var ljóst í nótt eftir að Golden State vann fimmta leikinn í einvígi sínu við Houston Rockets. 28. maí 2015 08:11 Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ Handbolti Fleiri fréttir Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Tryggvi og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu NBA-leik frestað vegna óeirða í Minneapolis Elvar og félagar köstuðu frá sér sigrinum Njarðvík nær í nýjan miðherja eftir meiðslin Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Uppgjör: Tindstóll-Njarðvík 113-92 | Stólarnir léku sér að Njarðvíkingum „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Uppgjörið: Álftanes - ÍA 89-83 | Justin James afþiðnaði á réttum tíma Kári: Það koma dalir á hverju tímabili Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Uppgjörið: Valur - Þór Þ. 80-71 | Valsmenn unnu framlengdan leik Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Tryggvi og félagar eru áfram með fullt hús í Evrópubikarnum Abby með sigurkörfuna 0,8 sekúndum fyrir leikslok Áfall Njarðvíkur fyrir grannaslag kvöldsins Fyrsta Evróputap Stólanna í Síkinu Fjórði sigur Haukakvenna í röð KR - Valur 66-77 | Valur komst upp fyrir KR eftir sigur í rimmu liðanna Martin stoðsendingahæstur í Evrópusigri Tímabilið búið hjá Butler Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Bað um að fara frá Keflavík Risaleikir í undanúrslitum bikarsins Sjá meira
NBA: 40 ára bið á enda hjá Golden State Warriors | Myndbönd Það verða Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers sem spila til úrslita um NBA-meistaratitilinn í ár en það var ljóst í nótt eftir að Golden State vann fimmta leikinn í einvígi sínu við Houston Rockets. 28. maí 2015 08:11