Aron: Ánægjuleg lending Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júní 2015 16:40 Aron stýrir landsliðinu næstu tvö árin. vísir/getty
Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag hefur Aron Kristjánsson skrifað undir nýjan samning við HSÍ sem gildir til næstu tveggja ára. „Við erum búnir að vera í viðræðum frá því eftir Serbaleikina en þær drógust vegna leikjaverkefna, bæði hjá Kolding og landsliðinu,“ sagði Aron í samtali við Vísi rétt í þessu. „Þetta er bara ánægjulegt og nú fer mann bara að hlakka til Evrópumótsins,“ sagði Aron ennfremur en íslenska liðið tryggði sér sem kunnugt er sæti í lokakeppni EM í Póllandi um helgina. Aron segist ekki hafa haft áhyggjur af því að samningsmálin myndu ekki ganga upp. „Nei, ég er búinn að vera rólegur yfir þessu. Þetta hafa verið ágætis viðræður allan tímann. Nú þarf bara að klára síðustu atriðin í samningnum því þetta dróst í nokkrar vikur,“ sagði Aron og bætti því við hann væri með ákveðnar verkefnaskyldur í samningum, m.a. að hann muni ekki stýra félagsliði á meðan samningnum stendur. Aron mun einnig koma að uppbyggingu innan handknattleikssambandsins. Gunnar Magnússon og Ólafur Stefánsson verða Aroni til aðstoðar næstu tvö árin. Hann segir samstarf þeirra þriggja ganga vel. „Það er mjög gott að hafa þá áfram. Þessi samsetning hefur virkað vel og það er góður taktur í okkar samstarfi,“ sagði Aron að lokum.
Íslenski handboltinn Tengdar fréttir Aron áfram með landsliðið | Gunnar og Óli Stef til aðstoðar Aron Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HSÍ og mun því stýra íslenska karlalandsliðinu til ársins 2017. 18. júní 2015 15:34 Formaður HSÍ: Skoðuðum ekki aðra kosti í starfið Handknattleikssambandið gekk frá tveggja ára framlengingu á samningi Arons Kristjánssonar sem landsliðsþjálfara karla í dag. 18. júní 2015 16:07 Mest lesið Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Enski boltinn Myndasyrpa: Glódís og forsetinn í hláturskasti á hófinu í Hörpu Sport Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Handbolti Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 83-79 | Nokkuð óvæntur sigur heimamanna Körfubolti Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni Fótbolti „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Enski boltinn Aðallega þeir tveir sem við erum að spenntir að fá inn í þetta Körfubolti Amorim segir leikmenn sína hrædda Enski boltinn Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Handbolti Fleiri fréttir ÍR byrjar nýja árið með besta hætti Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Díana Dögg öflug í sigri Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti Nýtt ár en áfram vinna Valskonur „Þetta eru gríðarlegar framfarir“ „Við eigum okkur allir drauma“ Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ „Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Ballið byrjar hjá strákunum okkar Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi Sigvaldi markahæstur er Kolstad varð bikarmeistari Strákarnir komnir í úrslit Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Sjá meira
Aron áfram með landsliðið | Gunnar og Óli Stef til aðstoðar Aron Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HSÍ og mun því stýra íslenska karlalandsliðinu til ársins 2017. 18. júní 2015 15:34
Formaður HSÍ: Skoðuðum ekki aðra kosti í starfið Handknattleikssambandið gekk frá tveggja ára framlengingu á samningi Arons Kristjánssonar sem landsliðsþjálfara karla í dag. 18. júní 2015 16:07