Jordan gafst upp á Stephenson og sendi hann til Clippers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2015 12:00 Michael Jordan og Lance Stephenson. Vísir/Getty
Lance Stephenson mun spila með Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta á næsta tímabil eftir að Clippers skipti á honum og tveimur leikmönnum Charlotte Hornets. Los Angeles Clippers lét Hornets fá þá Spencer Hawes og Matt Barnes í staðinn en bæði Stephenson og Barnes þykja vera tveir af þeim óútreiknanlegustu i NBA-deildinni. Lance Stephenson sló í gegn hjá Indiana Pacers en fékk betri samning hjá Charlotte Hornets síðasta sumar og sló til. Stephenson fann sig hinsvegar aldrei hjá liði Michael Jordan sem hefur nú losað sig við hann. Stephenson var aðeins í byrjunarliðinu í 25 af 61 leik og undir lok tímabilsins fékk hann ekkert að spila. Hann var bara með 8,2 stig í leik og hitti aðeins úr 17 prósent þriggja stiga skota sinna sem er versta nýting NBA-sögunnar meðal þeirra sem hafa náð lágmörkum. Stephenson var frábær hjá Indiana en vildi frekar fá 27 milljónir dollara fyrir þrjú ár hjá Charlotte en 44 milljónir fyrir fimm ár hjá Pacers. Pacers hækkaði ekki tilboð sitt og sá á eftir einum sínum mikilvægasta manni en Stephenson var með 13,8 stig, 7,2 fráköst og 4,6 stoðsendingar á síðasta ári sínum með Indiana. Matt Barnes átti ágætt tímabil með Los Angeles Clippers (10 stig í leik) en hann er orðinn 35 ára gamall og átti bara eitt ár eftir af samningi sínum. Miðherjinn Spencer Hawes gerði fjögurra ára samning við Los Angeles Clippers síðasta sumar en fékk aldrei alvöru hlutverk hjá Doc Rivers á sínu fyrsta tímabili.
NBA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti ÍR semur við bandarískan bakvörð Körfubolti „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira