LeBron riftir samningnum við Cleveland Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. júní 2015 09:00 LeBron James er hættur að taka á sig launalækkanir. vísir/getty
LeBron James ætlar ekki að þiggja þær 21,6 milljónir dollara sem Cleveland Cavaliers á að borga honum fyrir næsta tímabil heldur mun hann rifta samningnum sínum við félagið. Þetta er þó ekki gert í illu heldur má LeBron rifta rétt eins og Kevon Love ætlar að gera, en ESPN segist hafa heimildir fyrir þessu. Við þessu var búist og verður þetta í þriðja skiptið á sex árum sem LeBron verður frjáls á markaðnum sem opnar 1. júlí. Að þessu sinni er þó öruggt að hann mun semja aftur við Cleveland, samkvæmt heimildum ESPN. Hann ætlar ekki einu sinni að hitta önnur lið, stefna hans er að vinna NBA-meistaratitilinn með Cleveland Cavaliers. Hann þurfti að sætta sig við tap með liðinu í lokaúrslitunum í ár gegn Golden State Warriors. Launaþakið í NBA-deildinni er að hækka og hefur LeBron gefið það áður út að hann ætlar að fá eins mikið borgað og hann getur það sem eftir lifir ferilsins. Hann tók á sig launalækkun hjá Miami til að vinna titla. Tölfræðideild ESPN greindi frá því að Twitter í gærkvöldi að LeBron getur skrifað undir fimm ára samning í sumar sem tryggir honum 126 milljónir dollara (16,6 milljarða króna), eða gert það sama á næsta ári og fengið þá 167 milljóna dollara samning (22 milljarða króna). Sumarið 2017 getur LeBron, sem verður þá 32 ára gamall, gert fimm ára samning við Cleveland sem myndi tryggja honum 203 milljónir dollara eða 26,8 milljarða króna í laun. Rich Paul, umboðsmaður LeBron James, ætlar fyrst að ganga frá samningsmálum Tristans Thompsons sem spilaði vel fyrir Cleveland í úrslitakeppninni, en Cleveland er þó sagt ætla hafa samband við James og láta vita að hann mun fá allt það sem hann biður um.
NBA Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Sjá meira