Með síðustu þrjá sem valdir voru fyrstir Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. júní 2015 11:00 Anthony Bennett, Karl-Anthony Towns og Andrew Wiggins verða allir á Úlfavaktinni í vetur. vísir/getty
Minnesota Timberwolves var með fyrsta valrétt í nýliðavalinu í nótt og valdi miðherjann Karl-Anthony Towns frá Kentucky-háskólanum. Timberwolves var með versta árangurinn í NBA-deildinni á síðustu leiktíð (16-66) og er fyrsta liðið sem fær fyrsta valrétt í nýliðavalslottóinu eftir að enda með versta árangurinn. Þrátt fyrir að hafa aldrei áður verið með fyrsta valrétt í nýliðavalinu spila með Minnesota á næstu leiktíð síðustu þrír leikmennirnir sem valdir voru fyrstir. Cleveland Cavaliers, sem tapaði í úrslitum á móti Golden State Warriors fyrr í þessum mánuði, hefur verið ansi heppið undanfarin ár og fékk fyrsta valrétt í lottóinu bæði 2013 og 2014. Árið 2013 valdi liðið Anthony Bennett frá UNLV-háskólanum og í fyrra valdi Cleveland Andrew Wiggins fyrstan, en hann spilaði með Kansas. Wiggins spilaði þó aldrei leik fyrir Cleveland heldur var honum skipt með Bennett til Minnesota fyrir Kevin Love. Bennett á enn eftir að sanna að hann geti orðið alvöru leikmaður í NBA-deildinni en Wiggins vakti mikla athygli á síðustu leiktíð og sýndi að hann á framtíðina fyrir sér. Úlfarnir eru með ungt og spennandi lið og hafa nú innanborðs síðustu þrjá leikmennina sem valdir voru númer eitt í nýliðavalinu. Hvort það komi liðinu úr júmbósæti NBA-deildarinnar á svo eftir að koma í ljós.
NBA Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Sjá meira