Valinn síðastur í fyrstu umferð 2011 en fær nú tólf milljarða samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2015 12:30 Jimmy Butler. Vísir/Getty
Jimmy Butler verður áfram leikmaður Chicago Bulls en hann fékk nýjan risasamning hjá félaginu sem bandarískir fjölmiðlar sögðu frá í gær. Jimmy Butler fær 90 milljónir dollar næstu fimm árin sem það mesta sem hann gat fengið frá Bulls. Þetta gera 11,965 milljarða íslenskra króna. Fyrsta tímabil samningsins er 2015-16 en Butler á möguleika á því að sleppa síðasta ári samningsins sem er tímabilið 2019-20. Þetta er veruleg kauphækkun en hann fékk rétt rúmlega tvær milljónir dollara fyrir síðasta tímabil og var búinn að fá samtals 5,3 milljónir dollara fyrir fyrstu fjögur tímabilin sín í NBA-deildinni. Jimmy Butler var lengi vel þekktari fyrir frábæran varnarleik heldur en tilþrif í sókninni en það breyttist á nýloknu tímabili. Butler var með 20 stig, 5,8 fráköst, 3,3 stoðsendingar og 1,8 stolinn bolta að meðaltali með Bulls-liðinu og var bæði valinn í Stjörnuliðið sem og í annað varnarlið ársins. Hann var síðan valinn sá leikmaður sem tók mestum framförum milli tímabila og átti þau verðlaun fyllilega skilin. Jimmy Butler skoraði 2,6 stig í leik 2011-12, 8,6 stig í leik 2012-13, 13,1 stig í leik 2013-14 og loks 20,0 stig í leik í vetur. Hann hefur einnig hækkað sig í fráköstum og stoðsendingum öll árin. Butler stóð sig það vel að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, bað um það á twitter að uppáhalds NBA-liðið hans, Chicago Bulls, myndi semja aftur við leikmanninn. Saga Jimmy Butler ætti að vera frábær dæmisaga fyrir alla sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að ná árangri. Á fjórum árum hefur þessi leikmaður farið frá því að vera valinn síðastur í fyrstu umferð nýliðavalsins í það að fá 11,96 milljarða samning.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira