Lakers fær Roy Hibbert nánast gefins frá Indiana Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júlí 2015 22:30 Hibbert er bæði með bandarískan og jamaískan ríkisborgararétt. vísir/getty
Miðherjinn Roy Hibbert er genginn í raðir Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta. Lakers fékk Hibbert frá Indiana Pacers í skiptum fyrir valrétt í 2. umferð nýliðavalsins. Hibbert lék með Georgetown háskólanum sem er þekktur fyrir að framleiða góða miðherja. Hann var valinn númer 17 í nýliðavalinu 2008 af Toronto Raptors sem skipti honum strax til Indiana. Hibbert, sem er tröll að burðum (2,18 metrar á hæð og 132 kg), lék í sjö ár með Indiana var á þeim tíma tvívegis valinn í Stjörnulið Austurdeildarinnar. Tímabilið 2011-12 var besta tímabil miðherjans en var hann með 12,8 stig, 8,8 fráköst og 2,0 varin skot að meðaltali í leik. Hibbert átti einnig góða úrslitakeppni fyrir tveimur árum þegar hann var með 17,0 stig og 9,9 fráköst að meðaltali í leik. Þessar tölur hafa lækkað á síðustu árum en á síðasta tímabili var Hibbert með 10,6 stig og 7,1 frákast og spilaði aðeins 25,3 mínútur að meðaltali í leik. Lakers var með fjórða versta árangur allra liða í NBA í vetur en aðeins Philadelphia 76ers, New York Knicks og Minnesota Timberwolves unnu færri leiki.
NBA Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira