Sacramento Kings ræður konu sem aðstoðarþjálfara Kristinn Páll Teitsson skrifar 31. júlí 2015 12:30 Nancy Lieberman í Stjörnuleik NBA-deildarinnar 2010. Vísir/Getty
Nancy Lieberman, ein af þekktustu körfuboltakonum Bandaríkjanna, var í dag ráðin sem aðstoðarþjálfari Sacramento Kings í NBA-deildinni. Fylgir hún því í spor Becky Hammonds sem síðasta sumar var fyrst kvenna ráðin sem aðstoðarþjálfari í NBA-deildinni. Becky átti góðu gengi að fagna á síðasta tímabili sem leiddi til þess að hún stýrði hún liði San Antonio Spurs í sumardeildinni í ár. Er um að ræða sérstaka deild sem sett er upp fyrir liðin til þess að skoða nýliðana sem voru teknir í nýliðavalinu. Becky stýrði liðinu til sigurs og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína á hliðarlínunni. Ákvað Sacramento Kings að fylgja þessu eftir með að ráða Lieberman sem aðstoðarþjálfara og verður hún George Karl innan handar á næsta tímabili. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem Lieberman tekur að sér starf sem þjálfari karlaliðs en hún var ráðin sem aðalþjálfari Texas Legends í þróunardeild NBA-deildarinnar 2009, fyrst allra kvenna til þess að verða þjálfari hjá karlkyns atvinnumannaliði í körfubolta í Bandaríkjunum. Lieberman sem er yngsti leikmaðurinn í sögu Ólympíuleikanna sem leikmaður körfuboltaliðs var valin í bandaríska landsliðið aðeins sautján ára gömul. Lék hún aðeins tvö tímabil í WNBA-deildinni, sitt fyrsta þegar hún var 39 árs með Phoenix Mercury en hún lék síðar einn leik með Detroit Shock ellefu árum síðar. Hún var á sínum tíma valin inn í frægðarhöll körfuboltans fyrir áhrif sín á kvennakörfubolta í Bandaríkjunum og var hún síðar fyrsta konan sem valin var inn í frægðarhöll kvennkyns körfubolta í Bandaríkjunum.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira