KR eina liðið með fleiri stig en Skagamenn í síðustu fimm umferðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 12:30 Garðar Gunnlaugsson. Vísir/Ernir
Fjórtánda umferð Pepsi-deildar karla fer öll fram í kvöld þegar allir sex leikir hennar eru á dagskrá. Skagamenn munu þar reyna að byggja ofan á gott gengi liðsins að undanförnu. Skagamenn hafa aðeins tapað einu sinni í síðustu sjö deildarleikjum sínum og ennfremur unnið 3 af síðustu 5 leikjum sínum í Pepsi-deildinni. Þegar árangur liðanna tólf í síðustu fimm umferðunum er skoðaður betur kemur í ljós að það eru aðeins KR-ingar sem hafa náð í fleiri stig í síðustu fimm leikjum sínum en Skagamenn. KR-liðið vann fjóra leiki í röð áður en liðið gert markalaust jafntefli við Blika í síðustu umferð og KR-ingar hafa aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu fimm leikjum sínum. Skagamenn eru líka það lið sem hefur skorað flest mörk í síðustu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar eða tólf talsins. Skagamenn hafa skorað tveimur mörkum fleiri en Víkingar sem búa þar að 7-1 sigri á Keflavík á þessum tíma. Skagamenn hafa skorað tvö mörk eða fleiri í fjórum af þessum fimm leikjum en liðið vann í þessum umferðum mikilvæga heimasigra á Keflavík (4-2), ÍBV (3-1) og Leikni (2-1). Markaskorunin hefur líka dreifst vel á menn. Arsenij Buinickij er reyndar með þrjú mörk í þessum fimm leikjum en hin níu mörkin hafa skipts jafnt á milli átta manna auk eins sjálfsmarks. Skagaliðið hefur reyndar ekki haldið marki sínu hreinu í þessum fimm umferðum en það hefur ekki komið sök í góðri stigastöfnum liðsins.Flest stig í síðustu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar: 1. KR 13 2. ÍA 10 3. Valur 10 4. Víkingur 9 5. FH 8 6. Fylkir 8Fæst stig í síðustu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar: 12. Keflavík 1 11. Leiknir 2 10. Fjölnir 3 9. Breiðablik 5 8. ÍBV 7 7. Stjarnan 7Flest mörk skoruð í síðustu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar: 1. ÍA 12 2. Víkingur 10 3. FH 9 4. KR 8 4. Valur 8 4. ÍBV 8Fæst mörk fengin á sig í síðustu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar: 1. KR 1 2. Breiðablik 4 3. Valur 5 3. Víkingur 5 3. Stjarnan 5 6. Leiknir 6
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Líður alltaf yfir hana þegar hún kemur í mark Sport „Hefði séð eftir því alla ævi“ Íslenski boltinn „Mjög sáttur með samninginn“ Íslenski boltinn „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Körfubolti Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Enski boltinn Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Handbolti Magnús Már í viðræðum við HK Íslenski boltinn Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Enski boltinn Rúmar tvær milljónir í boði ef þú finnur hundinn hans Aarons Ramsey Fótbolti Real Madrid vill stórar skaðabætur frá UEFA Fótbolti Fleiri fréttir „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Tekur við af læriföður sínum Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ „Ég þarf bara að láta verkin tala“ Valur og Sigurður Egill senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu Sjá meira